1.
gr.
Sjóðurinn
heitir Vísindasjóður HM-manna í St.Rv. Heimili sjóðsins og varnarþing er
í Reykjavík.
2.
gr.
Aðild að sjóðnum
eiga þeir félagsmenn í St.Rv., sem greitt er fyrir í sjóðinn.
3.
gr.
Markmið sjóðsins
er að auka tækifæri sjóðfélaga til framhaldsmenntunar, endurmenntunar,
rannsókna og þróunarstarfa. Sjóðurinn greiði styrki til rannsókna- og þróunarverkefna,
námskeiðsgjöld, ferða- og dvalarstyrki, styrki vegna námskeiða, sem stéttarfélagið
eða einstök fagfélög eða félagshópar standa fyrir, aukaþóknun fyrir óvenju
umfangsmikil verkefni, laun á námsleyfistíma og aðstoði sjóðfélaga til
endurmenntunar eða á annan hátt samkvæmt ákvörðun stjórnar sjóðsins.
4.
gr.
Stjórn
St.Rv. skipar stjórn sjóðsins til tveggja ára í senn og skal hún skipuð
einum fulltrúa frá stjórn St.Rv. og tveim HM-mönnum. Sjóðsstjórn skiptir
með sér verkum og setur sér starfsreglur í samræmi við markmið sjóðsins.
Stjórnin
skal halda gerðabók og rita í hana allar samþykktir sínar. Til þess að
samþykkt sé lögmæt þarf meirihluti stjórnarmanna að greiða henni atkvæði.
5.
gr.
Tekjur sjóðsins
eru:
a.
Framlag Reykjavíkurborgar, sem nemi 1.5 % af dagvinnulaunum sjóðfélaga
skv. samkomulagi þessu, milli St.Rv.
og Reykjavíkurborgar.
b.
Vaxtatekjur.
c.
Aðrar tekjur.
Sjóðurinn
verði ávaxtaður á þann hátt, sem sjóðsstjórn telur hagkvæmast á
hverjum tíma.
6.
gr.
Reikningsár
sjóðsins skal vera almanaksárið.
Reikningar
skulu liggja fyrir í síðasta lagi í lok febrúar ár hvert og skulu þeir
endurskoðaðir af til þess kjörnum endurskoðendum.
7.
gr.
Reglur þessar
eru settar samkvæmt samkomulagi, milli St.Rv. og Reykjavíkurborgar.