Starfsreglur
vísindasjóðs HM-manna í St.Rv.
1.
gr.
Starfsreglur
þessar eru settar á grundvelli samkomulags St.Rv. og Reykjavíkurborgar, sem
staðfest var með bréfi frá borgarstjóra,. dags. 24. des. 1991 og
“reglna”, sem þar lágu til grundvallar.
2. gr.
Tekjum
sjóðsins skal einungis varið í samræmi við markmið hans, sbr. 3. gr.
“reglna”.
Óheimilt
er að styrkja aðra en þá, er um getur í 2. gr. “reglna”. Fé sjóðsins
má ekki ráðstafa þannig að það komi í stað samnings- eða lögbundinna
réttinda félagsmanna, sem vinnuveitandi hefur kostað hingað til.
3. gr.
Þeir
sem sækja um styrk úr sjóðnum skulu fyrir 1. maí og 1. október ár hvert,
senda stjórn sjóðsins umsókn á sérstöku eyðublaði, þar sem fram kemur
lýsing á því námi eða verkefni, sem styrkurinn skal renna til, áætlaður
kostnaður og námstími, aðrir styrkir og aðrar þær upplýsingar, sem stjórn
sjóðsins telur nauðsynlegar. Sjóðsstjórn tekur ákvörðun um
styrkveitingar og upphæð styrkja í samræmi við ákvæði 2. greinar.
4. gr.
Ákvarðanir
um styrkveitingar skulu liggja fyrir í síðasta lagi 15. maí og 15. október
ár hvert.
Ekki
skal úthluta styrkjum til sjóðfélaga, sem starfað hafa skemur en 6 mánuði.
5. gr.
Reglur
þessar taka gildi frá undirritun og skulu endurskoðaðar innan tveggja ára.
Gert í febrúar 1992 og mars 1993.