Ályktun frá fulltrúaráði St.Rv.
Fulltrúaráðsfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, haldinn 10. janúar 2012, krefst leiðréttingar á launum.
Í febrúar 2009 var Reykjavíkurborg fyrsti opinberi vinnuveitandinn til þess að skerða kjör starfsmanna sinna. Uppsögn var ýmist á fastlaunasamningum eða ráðningarsamningum og á ársgrundvelli átti kjaraskerðing að hámarki 10 % að verða hjá þeim sem voru með 300 þúsund kr. mánaðarlaun eða hærra. Þetta átti að vera tímabundin aðgerð. Jafnframt hafa margir félagsmenn St.Rv. þurft á þessu tímabili að hlýta skerðingu á starfshlutfalli.
Í kjarasamningsviðræðum síðastliðið sumar tók samninganefnd Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar málið upp. Kom fram mikil óánægja með þær kjarakerðingar sem orðið höfðu hjá stórum hópi félagsmanna. Hallur Páll Jónsson formaður samninganefndar Reykjavíkurborgar sýndi þessu efni skilning og sagði að sýnt þætti að framundan væri bjartari tíð þar sem Reykjavíkurborg sæi fram á að geta fært kjörin til baka til fyrra horfs.
Nú eftir ákvörðun kjararáðs ríkisins, að draga til baka launalækkanir hjá ráðherrum, þingmönnum og embættismönnum hefur borðið á mikilli ólgu hjá félagsmönnum okkar sem unnið hafa undir miklu álagi síðustu árin. Því krefjumst við þess að Reykjavíkurborg dragi til baka þessar kjaraskerðingar sem áttu að vera tímabundnar.