Viðræður við Strætó bs, Orkuveitu Reykjavíkur og Faxaflóahafnir eru í fullum gangi og af endurnýjuðum krafti nú eftir að kjarasamningur félagsins við Reykjavíkurborg hefur verið samþykktur og er sá samningur auðvitað lagður til grundvallar af hálfu félagsins í viðræðunum. Viðræður þessar hafa gengið vel í öllum tilfellum og
|
Niðurstaða úr atkvæðagreiðslu um kjarasamning St.Rv. við Reykjavíkurborg liggur nú fyrir. Á kjörskrá voru 2525 manns. Atkvæði greiddu 1025 eða 40% félagsmanna. Samþykkir samningnum voru yfirgnæfandi eða 967 eða 94% þáttakanda. Ósamþykkir samningnum voru 37 eða 5% greiddra atkvæða. Auðir og ógildir voru 7.
Nú eru félagsmenn, starfandi hjá Reykjavíkurborg væntanlega búnir að fá senda í pósti kynning á nýgerðum kjarasamningi við Reykjavíkurborg ásamt kjörseðli. Félagsmenn eru hvattir til þess að taka þátt í kosningunni.
Á mánudaginn 12 desember verður kynningarfundur á nýundirrituðum kjarasamningi í Tónabæ sérstaklega auglýst fyrir þá starfsmenn sem ekki komust á fyrri fundi.
Nú er kynning á nýgerðum kjarasamningi í fullum gangi. Hófst kynningin á fundi með Fulltrúaráði og trúnaðarmönnum á Grand hotel í gær, 6. desember, í dag 7. des. var kynning í ráðhúsi Reykjavíkur, á morgun miðvikudaginn 8. des. verður kynningarfundur á Grettisgötu 89, 4 hæð, félagsmenn eru hvattir til þess að mæta á kynningafundi eða kynna sér kjarasamninginn. Hér fylgir með úrdráttur með helstu ákvæði í kjarasamningi.
|
Skrifað var undir kjarasamninga St.Rv. við Reykjavíkurborg nokkru fyrir miðnætti í gærkvöld, sunnudaginn 4. desember í húsakynnum Ríkissáttasemjara. Nú verður hafist handa við að kynna samninginn fyrir félagsmönnum og undirbúa skriflega allsherjaratkvæðagreiðslu sem fer þannig fram að félagsmenn munu fá send kjörgögn í pósti ásamt upplýsingum um helstu breytingar og nýjungar, sem í kjarasamningnum felast. |
![]() |
Rétt er að taka fram, að viðtal það sem birtist í Morgunblaðinu í gær sunnudag, var tekið við formann félagsins s.l. föstudagsmorgun, en samninganefnd félagsins hafði þá tekið sér hlé frá viðræðum vegna dræmra undirtekta samninganefndar borgarinnar við kröfum okkar. Eftir þetta hlé voru viðræður teknar upp á ný og fóru þá hlutirnir að ganga betur. Og nú hafa sem sagt samningar náðst sem samninganefnd félagsins leggur á næstu dögum undir dóm félagsmanna. Kjarasamningur í heild