Nýstofnaður kór borgarstarfsmanna
Í tilefni síðasta fulltrúaráðsfundar St.Rv. á áttatíu ára afmælisári félagsins var haldin sérstök hátíðardagskrá 14. desember síðastliðinn. Boðið var upp á glæsilegt jólahlaðborð og fulltrúaráðsmeðlimir fengu jólagjafir frá félaginu. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri og
|
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og SFR stéttarfélag í almannaþjónustu halda sameiginlegt jólaball föstudaginn 29. desember kl. 16 í Súlnasal Hótel Sögu. Hljómsveitin Saga Klass sér um að halda uppi fjörinu með dansi í kring um jólatréð. Jólasveinar koma í heimsókn. Miðasala verður á skrifstofu félagsins að Grettisgötu 89 |
|
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar boðar til auka aðalfundar þriðjudaginn 5. desember 2006
Félagar í Starfsmannafélagi Akraness greiddu atkvæði um hvort félagið ætti að sameinast Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar. Atkvæðagreiðslan fór fram dagana 30. nóv. og 1. des. sl. Á kjörskrá voru 319. Atkvæði greiddu 130 eða 40% félagsmanna. Niðurstaða atkvæðagreiðslu var að JÁ sögðu 116 eða 89%, NEI sögðu 12 eða 10,8%, 2 seðlar voru auðir. Auka aðalfundur hefur verið boðaður hjá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar á þriðjudaginn 5. desember þar sem það þarf að breyta lögum félagsins þannig að Starfsmannafélagi Akraness geti sameinast St.Rv. 1. janúar 2007.
Jafnréttislög sem verkfæri til launajöfnunar - hádegisfróðleikur
- Eru möguleikar karla og kvenna á vinnumarkaði þeir sömu?
Næstkomandi fimmtudag, 30. nóvember milli kl. 12 og
Í kjarasamningi er kveðið á um að greiða skuli desemberuppbót 1. desember. Í kjarasamningi við Reykjavíkurborg, Strætó bs., Orkuveituna og Faxaflóhafnir er desemberuppbót fyrir árið 2006 46.000 krónur. Í samningu við fjármálaráðuneytið er upphæðin 40.700 krónur.
Ráðstefna um Málefni eldri starfsmanna var haldin föstudaginn 17. nóvember sl. í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Ráðstefna var haldin sameiginlega af samninganefnd Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar til heiðurs Sjöfn Ingólfsdóttur, fyrv. formanni Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Mörg áhugaverð erindi voru flutt á ráðstefnunni.
Á fulltrúaráðsfundi sem haldinn var 15. nóvember sl. fjallaði Páll H. Hannesson um herferð EPSU um almannagæðaþjónustu sem þing BSRB samþykkti að taka þátt í.
Þetta athyglisverða erindi vakti upp margar spurningar á fundinum og urðu umræður miklar.
41. þing BSRB verður haldið dagana 25. til 27. október á Grand Hóteli í Reykjavík. Þingsetning er kl. 13.00 miðvikudaginn 25. október. Þing BSRB eru haldin þriðja hvert ár. Á þinginu er stefna bandalagsins til næstu þriggja ára mótuð en þingfulltrúar eru um 220 talsins. Þá er kosið í framkvæmdanefnd BSRB en hana skipa formaður, tveir varaformenn, gjaldkeri og ritari.
|
Í tilefni vinnuverndarvikunnar, sem stendur yfir 23. - 27. október, stóðu SFR og St.Rv. sameiginlega fyrir hádegisverðarfróðleik í dag. Ása G. Ásgeirsdóttir, verkefnisstjóri vinnuverndarvikunnar, kynnti markmið og viðburði vikunnar ásamt því að fjalla um mál sem sérstaklega þarf að hafa í huga varðandi ungt fólk á vinnumarkaði. |
| Á fulltrúaráðsfundi 18. október sl. flutti dr.Stefán Ólafsson, erindi undir heitinu skattar og og lífskjör almennings. Þar fór hann yfir hvernig skattbyrði þeirra tekjulægstu í þjóðfélaginu hefur aukist til muna á árunum frá 1995-2004 meðan skattbyrði tekjuhæsta hópsins hefur lækkað töluvert. Auk þess að skýra að sú kaupmáttaraukning sem hefur verið hafi komið í mun stærra hlutfalli til tekjuhæsta hópsins í samfélaginu. Fram kom að í samanburði við önnur Evrópuríki frá árunum 2003-2004, ríki fjórði mesti tekjuójöfnuðurinn á Íslandi, en á árum áður var ísland í hópi þeirra landa sem ójöfnuðirinn var hvað minnstur. |
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar ásamt SFR býður upp á námskeið og fyrirlestra á haustönn fyrir félagsmenn. Fyrirlestrar í hádegi er nýjung að þessu sinni en þeir eru haldnir þriðja föstudag í hverjum
Unnið er að gerð nýrra félagsskírteina, en nú þegar eru skírteinin útrunnin, það var hinsvegar óheppilegur tími sem þau runnu út á þar sem erfitt var að ná í eigendur og rekstraraðila sem höfðu veitt okkur afslátt. Því var...
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar fagnar þeirri ákvörðun, sem tekin var í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur í gær að falla frá þeim umfangsmiklu framkvæmdum sem fyrirhugaðar voru á Úlfljótsvatni. Félagið hefur um árabil haft aðgang að víðfemu svæði fyrir orlofshús félagsins sem stóð til að þrengja verulega að. Sjá einnig yfirlýsingu sem send hefur verið út af hópi fólks sem lætur sig náttúru og lífríki Úlfljótsvatns varða.
Nú nýverið, fór norðurlanda-mót vagnstjóra fram í Helsinki í þrítugasta sinn. Stofnað var til þessarar keppni árið 1976. Tilgangur þessa móts hefur alltaf verið að auka og viðhalda færni og þekkingu vagnstjóra á öku-tækjum sínum, auk þess sem góður félagsskapur hefur myndast í gegnum tíðina og traust vinabönd myndast í áranna rás. Höfuðborgirnar fimm, skiptast á að halda keppnina og skipa sex vagnstjórar hvert lið, sem ekur keppnisbraut sem samanstendur af tíu þrautum sem þarf að leysa |

Frá undirritun samkomulagsins. Frá vinstri: Garðar Hilmarsson formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélags Íslands, Árni Stefán Jónsson formaður SFR, Ögmundur Jónasson formaður BSRB, Jóhanna Arnórsdóttir framkvæmdastjóri Framvegis, Sölvi Sveinsson skólameistari Verzlunarskólans og Helgi Jóhannsson formaður stjórnar Verzlunarskólans.
Nú er stofnanasamningur fyrir stærsta hluta félagsmanna á LSH í höfn.
Endurskoðun stofnanasamninga hefur farið fram, samið um í kjarasamningi að taka upp nýja og breytta launatöflu frá og með 1. maí sl. Í öllum tilvikum er nýr samningur afturvirkur frá 1. maí sl. og sú regla er algild að enginn skuli lækka í dagvinnulaunum við yfirfærsluna. Gengið hefur verið frá vörpun yfir í nýja launatöflu fyrir háskólamenn á sama samningi.
|
Yfir fimmtíu manns sóttu fyrirlestur Jürgens Buxbaum og Alans Leather frá PSI – Alþjóðasamtökum launafólks í almannaþjónustu – sem haldinn var í BSRB húsinu föstudaginn 7. júlí sl. Þeir fjölluðu um opnun vinnumarkaða, í Evrópu og á heimsvísu, og afleiðingum þeirra hræringa sem hún hefði haft í för með sér. |
| Á dögunum fór rúmlega 100 manna hópur eldri félagsmanna í ferð á vegum félagsins norður til Akureyrar. Áhugi á ferðinn var svo mikill þetta árið að bæta þurfti við rútu til þess að allir sem skráðu sig á biðlista kæmust með. Nú höfum við fengið myndir sem Þórdís Sigurðardóttir, ein af skipuleggjendum, tók í ferðinni. |
Ekki ráðum við veðurguðunum. Það sannaðist í gær. Svo mikla þoku gerði þá á Genfarflugvelli að flugumferð þar tafðist með þeim afleiðingum að þeir Alan Leather og Jürgen Buxbaum, sem
|
Umræðufundur um þjónustutilskipun ESB, opnun vinnumarkaðarins og stöðu verkalýðshreyfingarinnar í Austur-Evrópu. BSRB boðar til umræðufundar með tveimur reyndum forystumönnum Alþjóðasamtaka starfsmanna í almannaþjónustu, PSI (Public Services International), fimmtudaginn 6. júlí kl. 10 í húsi BSRB að Grettisgötu 89, 1. hæð. |
![]() Golfvöllurinn Glanni verður vígður laugardaginn 1. júlí nk. en BSRB á aðild að rekstrarfélagi klúbbsins. Völlurinn er í næsta nágrenni orlofsbyggða BSRB í Munaðarnesi og Stóru Skógum og fá félagsmenn í BSRB helmings afslátt á völlinn. Almennt verð á völlinn er 1800 kr. en félagar í BSRB borga 900 kr. Þetta er níu holu völlur í mjög fögru umhverfi |
Enn er verið að selja gistimiða á Eddu hótelin sem eru staðsett víðsvegar um landið. Hver miði gildir fyrir tveggja manna herbergi með handlaug og kostar 4.200 kr. fyrir herbergið.
|
Starfsmannafélag Akranes leitaði til Starfsmannfélags Reykjavíkurborgar með þá hugmynd að félögin tvö mundu sameinast. Ekki hafa farið fram viðræður um málið nema í stjórn hjá St.Rv. en aðalfundur St.Ak. hefur veitt stjórn St.Ak. umboð til þess að hefja viðræður við stjórn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar um hugsanlega sameiningu félaganna. Tillaga þar að lútandi var samþykkt á framhalds aðalfundi félagsins 22. maí sl. en á fundinn mætti Jakobína Þórðardóttir varaformaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og kynnti starfsemi félagsins og sat fyrir svörum. |
Það eru nokkur orlofshús laus á næstu vikum. Sérstaklega á það við um Úlfljótsvatn og Munaðarnes. Húsin eru öll með heitum pottum. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins í síma 525-8330.
| Hópur fólks, sem láta sig fyrirhugaðar framkvæmdir við Úlfljótsvatn varða hefur opnað bloggsíðu. Nú fer fram skoðanakönnun á afstöðu fólks til framkvæmdanna á síðunni. Haft var samband við félagið og það hvatt til þess að tjá sitt sjónarhorn vegna framkvæmdanna í gestabók síðunnar. http://ulfljotsvatn.blog.is/blog/ulfljotsvatn/ |
![]() |
|
Hljómsveitin Rass með skýr pólitísk skilaboð |
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning félagsins við Orkuveituna lauk um hádegi 16. maí. Niðurstaðan er eftirfarandi: Á kjörskrá voru 217. Atkvæði greiddu 108 eða 49 %. Já sögðu 91 eða 85%. Nei sögðu 15 eða 14.8 %. Auðir/ógildir 2.
| Á mánudaginn 15. maí var undirritaður fyrsti sjálfstæði kjarasamningur félagsins við Orkuveituna. Samningurinn var kynntur starfsmönnum á fundi þriðjudaginn 16. maí og í lok fundar borinn undir atkvæði. |
Í dag voru undirritaðir kjarasamningar við Launanefnd sveitarfélaga vegna starfsmanna hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og við Félagsbústaði hf. Samningar við Félagsbústaði voru bornir undir atkvæði félagsmanna
|
Rokk og pólitík er yfirskrift uppákomu sem SFR og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar gangast fyrir í nýrri félagamiðstöð BSRB á Grettisgötu 89 miðvikudaginn 17. maí næstkomandi. Þar munu troða upp nokkur heitustu rokkböndin í dag og nokkrir þeirra stjórnmálamanna sem eru í eldlínunni í baráttunni fyrir sveitastjórnarkosningarnar.
|
|
LEB, ASÍ, BSRB, SGS, Samiðn og Öryrkjabandalag Íslands efna til Ráðstefnu um Skatta og Skerðingar 3. maí 2006, kl. 13:00 til 16:00 í Öskju, Náttúrufræðistofnun Háskóla Íslands.
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar mun eins og síðustu ár selja miða á Eddu hótelin í sumar á niðurgreiddu verði. Sala miða hefst 1. júní nk. Hver miði gildir fyrir tvo í gistingu í tveggja manna herbergi með handlaug í eina nótt á 4.200 kr. stk. Ekki er innifalin morgunverður
Dagskrá Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík verður með þeim hætti að safnast verður saman á Hlemmi kl. 13.00. Gangan leggur af stað kl. 13.30. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika fyrir göngu. Gengið verður niður Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti og inn á Ingólfstorg. Útifundur á Ingólfstorgi hefst kl. 14.10. og áætlað að honum ljúki kl. 15.00.
Vísindasjóður styrkir félagsmenn með háskólamennun til framhalds- og endurmenntunar og rannsókna- og þróunarstarfa. Stjórn sjóðsins úthlutar úr honum tvisvar sinnum á ári, í maí og október. Umsóknarfrestur fyrir vorúthlutun er 1. maí.
Frestur til þess að sækja um orlofshús og íbúðir í sumar er til 3. aríl. Félagið leigir hús í Munaðarnesi, á Úlfljótsvatni, Eiðum, Aðaldal og Illugastöðum og svo eru íbúðir á Akureyri og í Súðavík.
Félagsmálaskóli alþýðu heldur námskeiðið Starfsmannamál og mannauðsstjórnun 26. apríl að Grensásvegi 16a, 108 Reykjavík. Námskeiðið stendur í einn dag frá kl. 9 til 16 og er Gylfi Dalmann Aðalsteinsson leiðbeinandi.
| Jóni Kristjánssyni formanni stjórnarskrárnefndar var í dag, á alþjóða vatnsdeginum, afhent erindi 14 félagasamtaka til stjórnarskrárnefndar. Í erindinu segir m.a.: „Vegna mikilvægis vatns fyrir íslenska þjóð og lífríki landsins telja undirrituð samtök nauðsynlegt að fest verði í stjórnarskrá Íslands ákvæði um skyldur og réttindi stjórnvalda og almennings hvað varðar réttindi, verndun og nýtingu vatns. Lög og reglugerðir um nýtingu vatns taki því mið af ákvæðum sem viður-kenna rétt einstaklinga til vatns sem og lögum er varða verndun vatns og náttúru.“ Jóni Kristjánssyni formanni stjórnarskrárnefndar var í dag, á alþjóða vatnsdeginum, afhent erindi 14 félagasamtaka til stjórnarskrárnefndar. | ![]() |
nefnist fyrirlestur sem Dr. Hilmar J. Malmquist líffræðingur og forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs flytur í dag þriðjudaginn 22. mars klukkan 17-18 fyrir félagsmenn í SFR og Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar
Fulltrúaráðsfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar verður haldinn á fimmtudaginn 23. mars nk. kl. 14. Fundurinn er ætlaður öllum fulltrúum félagsins og trúnaðarmönnum. Meðal efnis á fundinum er að Erna Guðmundsdóttir lögfræðingur BSRB mun flytja erindi um túlkun kjarasamninga.
Í dag, þriðjudaginn 7. mars kl. 16:30 heldur Lilja Mósesdóttir fyrirlestur að Grettisgötu 89, 4 . hæð. Fyrirlesturinn fjallar um launajafnrétti, mælingar, skýringar og aðgerðir. Hún, mun gera grein fyrir niðurstöðum norræna verkefnisins Mælistikur á launajafnrétti.
| Aðalfundur félagsins var haldinn síðastliðinn laugardag. Þar fóru fram lögbundin aðalfundarstörf og gengu þau fljótt og vel fyrir sig. Kjörstjóri kynnti nýja stjórn til næstu tveggja ára. Ekki bárust mótframboð við tillögu uppstillingarnefndar þannig að sjálfkjörið var í stjórn. Garðar Hilmarsson formaður og fimm stjórnarmenn til næstu tveggja ára eru; Guðríður Sigurbjörnsdóttir, Guðrún Árnadóttir, Hallgerður Inga Gestsdóttir, Jakobína Þórðardóttir og Jónas Engilbertsson. Aðrir í stjórn næsta ár eru Jón Ingi Hilmarsson, Ragnhildur Helgadóttir, Víglundur Rúnar Jónsson, Þóra Sigurðardóttir og Þórdís Sigurðardóttir. Undir liðnum önnur mál var fjallað |
Fasteignamat ríkisins (FMR) tók á síðasta ári upp eigin reglur varðandi reglur og leiðbeiningar um öryggi í upplýsingatækni. Þar áskilur Fasteignamatið sér m.a. rétt til að skrá notkun á internetinu í þeim tilgangi að fylgjast með að reglum þessum sé fylgt og til að tryggja sem hagkvæmasta notkun netsins auk þess sem allur tölvupóstur sem sendur er í póstkerfi stofnunarinnar sé eign hennar og henni heimilt að skoða hann. Eftir ósk SFR fór BSRB yfir þessar reglur með tilliti til reglna um persónuvernd starfsmanna. Þá sendi BSRB erindi til Persónuverndar vegna þessara reglna og nú hefur Persónuvernd sent Fasteignamatinu leiðbeiningar þar sem bent er á að ýmislegt í þessum reglum þurfi að lagfæra.
![]() |
Fullt af nýjum áhugaverðum námskeiðum eru í boði nú á vorönninni undir yfirskriftinni Gott að vita. Þar má nefna fyrirlestur um launajafnrétti 7. mars nk. og um Vatnið í náttúru Íslands sem haldinn verður á alþjóðlega vatnadeginum, 22. mars nk. Eflaust eru margir farnir að velta vöngum yfir komandi sumarfríi og er nú í fyrsta sinn boðið upp á vinnustofu um skipulagningu sumarfrísins. Við höldum áfram að bjóða upp á námskeið eins og Hvort ég get? Ekki málið - Sjálfsímynd og samskipti og hin sívinsælu ljósmyndanámskeið.
|
Kjarasamningur hefur verið undirritaður við Launanefnd sveitarfélaga vegna starfsmanna hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga. Gildistími samningsins er frá 1. desember 2005 til 30. nóvember 2008. Kjarasamningurinn var kynntur á fundi í á þriðjudaginn 7. febrúar og samþykktur með öllum atkvæðum.
| Ekkert mótframboð barst við tillögu uppstillingarnefndar til stjórnarkjörs en framboðsfrestur rann út 1. febrúar sl. Það er því ljóst að eftirtaldir skipa nýja stjórn starfsmannafélags Reykjavíkurborgar frá 4. mars nk. Garðar Hilmarsson formaður, aðrir í stjórn verða Guðríður Sigurbjörnsd., Guðrún Árnadóttir, Hallgerður Inga Gestsd., Jakobína Þórðard. og Jónas Engilbertsson. |
Starfsmannafélagið bauð fulltrúum frá Fjölsmiðjunni og Barna- og unglingageðdeild auk starfsmanna í félagamiðstöðinni á Grettisgötu og stjórn félagsins til kaffisamsætis á afmælisdaginn. Sjöfn Ingólfsdóttir afhenti fulltrúum frá Fjölsmiðjunni og BUGL gjafabréf frá félaginu. Fjölmargir hafa sent félaginu heillaóskir á 80 ára afmælinu.
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar var stofnað 17. janúar 1926 og er því 80 ára um þessar mundir. Stjórn og fulltrúaráð félagsins hefur ákveðið að minnast þessara merku tímamóta með ýmsum hætti. Viðamesta framtak félagsins í tilefni afmælisins verður að styðja við bakið á starfsemi í þágu barna og ungs fólks með fjárframlögum. Barna- og unglingageðdeild LSH mun njóta góðs af framtakinu og einnig Fjölsmiðjan í Kópavogi en hún starfrækir, með meiru, verkþjálfunar- og framleiðslusetur fyrir ungt fólk á aldrinum 16-24 ára. Þá munu stjórn og fulltrúaráð efna til nokkurra viðburða á afmælisárinu fyrir félagsmenn og velunnara félagsins.
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar við Strætó bs. fór fram í kjölfar kynningafunda. Kjarasamningurinn var samþykktur með 99% greiddra atkvæða. Eitt atkvæði á móti og eitt autt. Á kjörskrá voru 224 einstaklingar en 154 tóku þátt í atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn.
Kynningafundur var haldinn í gær mánudaginn 9. janúar með félagsmönnum sem starfa hjá Faxaflóahöfnum. Í kjölfar kynningar var samningurinn borinn undir atkvæði. 67% félagsmanna tóku þátt í atkvæðagreiðslu um samninginn og var hann samþykktur með öllum atkvæðum.
Fyrir stundu var undirritaður fyrsti sjálfstæði kjarasamningurinn við Strætó bs. Kjarasamnigurinn er í flestu sambærilegur við kjarasamnning sem félagið gerði við Reykjavíkurborg. Kynning á kjarasamningnum fer fram á miðvikudaginn 11. janúar, kl. 10 og 20 að Grettisgötu 89, 4. hæð og verða greidd atkvæði um hann að lokinni kynningu.
| Fyrsti sjálfstæði kjarasamningur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Faxaflóahafna sf. var undirritaður í gær, 5. janúar 2006 í fundarsal hafnarstjórnar. Samningurinn er í öllum meginatriðum sambærilegur nýgerðum kjarasamningi félagsins við Reykjavíkurborg. |