Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

20.1.2006

Afmæliskaffi á Grettisgötu

Starfsmannafélagið bauð fulltrúum frá Fjölsmiðjunni og Barna- og unglingageðdeild auk starfsmanna í félagamiðstöðinni á Grettisgötu og stjórn félagsins til kaffisamsætis á afmælisdaginn. Sjöfn Ingólfsdóttir afhenti fulltrúum frá Fjölsmiðjunni og BUGL gjafabréf frá félaginu. Fjölmargir hafa sent félaginu heillaóskir á 80 ára afmælinu.

16.1.2006

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar 80 ára

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar var stofnað 17. janúar 1926 og er því 80 ára um þessar mundir. Stjórn og fulltrúaráð félagsins hefur ákveðið að minnast þessara merku tímamóta með ýmsum hætti. Viðamesta framtak félagsins í tilefni afmælisins verður að styðja við bakið á starfsemi í þágu barna og ungs fólks með fjárframlögum. Barna- og unglingageðdeild LSH mun njóta góðs af framtakinu og einnig Fjölsmiðjan í Kópavogi en hún starfrækir, með meiru, verkþjálfunar- og framleiðslusetur fyrir ungt fólk á aldrinum 16-24 ára. Þá munu stjórn og fulltrúaráð efna til nokkurra viðburða á afmælisárinu fyrir félagsmenn og velunnara félagsins.

12.1.2006

Kjarasamningur samþykktur með 99% greiddra atkvæða

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar við Strætó bs. fór fram í kjölfar kynningafunda. Kjarasamningurinn var samþykktur  með 99% greiddra atkvæða. Eitt atkvæði á móti og eitt autt. Á kjörskrá voru  224 einstaklingar en 154 tóku þátt í atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn.

10.1.2006

Kjarasamningur við Faxaflóahafnir samþykktur

Kynningafundur var haldinn í gær mánudaginn 9. janúar með félagsmönnum sem starfa hjá Faxaflóahöfnum. Í kjölfar kynningar var samningurinn borinn undir atkvæði. 67% félagsmanna tóku þátt í atkvæðagreiðslu um samninginn og var hann samþykktur með öllum atkvæðum.

9.1.2006

Kjarasamningur við Strætó bs

Fyrir stundu var undirritaður fyrsti sjálfstæði kjarasamningurinn við Strætó bs. Kjarasamnigurinn er í  flestu sambærilegur við kjarasamnning sem félagið gerði við Reykjavíkurborg. Kynning á kjarasamningnum fer fram á miðvikudaginn 11. janúar, kl. 10 og 20 að Grettisgötu 89, 4. hæð og verða greidd atkvæði um hann  að lokinni kynningu.

6.1.2006

Söguleg stund!

Fyrsti sjálfstæði kjarasamningur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Faxaflóahafna sf. var undirritaður í gær, 5. janúar 2006 í fundarsal hafnarstjórnar. Samningurinn er í öllum meginatriðum sambærilegur nýgerðum kjarasamningi félagsins við Reykjavíkurborg.

 




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English