Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

28.12.2007

Jólaball St.Rv. og SFR


Jólaball Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR var haldið í gær á Hótel Sögu, Súlnasal og var góður hópur sem skemmti sér konunglega við söng og dans í kring um jólatré. hápunkturinn var auðvita þegar jólasveinarnir heimsóttu samkvæmið.  

11.12.2007

Karlar eiga jafnan rétt á við konur í fæðingarorlofi

Reglum um greiðslur Fjölskyldu- og styrktarsjóðs BHM, BSRB og KÍ (FOS) í fæðingarorlofi var breytt 1. júní sl. Þá var horfið frá tekjutengdum greiðslum til mæðra og þess í stað greiddir fæðingarstyrkir til foreldra. Styrkirnir eru jafnháir til karla og kvenna en hliðsjón höfð af starfshlutfalli.  Breytingin varðar foreldra barna sem fæðst hafa eftir 1. júní. Í dag er greiðsla miðað við 100% starf 170 þúsund krónur. Í gildi verður að vera ráðningarsamningur við upphaf fæðingarorlofs. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu sjóðsins http://www.fos.is/

3.12.2007

Forvarnir gegn einelti og kynferðislegri áreitni

vinnueftirlitið heldur málþing um forvarnir og aðgerðir gegn einelti og kynferðislegri áreitni á vinnustöðum 5.des. nk. á Grand Hóteli. Málþingið hefst með skráningu og morgunverði kl.8:00. Formleg dagskrá hefst kl. 8.30 og stendur til kl.10.15. Málþingið er ætlað þjónustuaðilum í vinnuvernd, fulltrúum stjórnsýslu, heilbrigðisstarfsfólki, fulltrúum samtaka á vinnumarkaði, stjórnendum og starfsmönnum á vinnustöðum og öðrum sem áhuga hafa á málefninu.

29.11.2007

Námstilboð fyrir ritara og skrifstofustjóra í skólum

Námstilboð fyrir ritara og skrifstofustjóra í grunn- og framhaldsskólum er í samvinnu Framvegis og Verslunarskóla Íslands, er blanda af staðbundnu námi í Verzlunarskólanum og fjarnámi í WebCT kerfinu, en skólinn hefur góða reynslu af því og það hefur nýst vel í fullorðinsfræðslu á vegum hans. Námið er einingabært (22 einingar) þannig að þeir sem hyggjast leggja stund á frekara nám geti lagt fram þessar einingar með sér. Gert er ráð fyrir að nýr hópur hefji nám í janúar 2008 með fyrirvara um næga þátttöku.
Námið dreifist á þrjár annir og verður blanda af staðbundnum lotum og fjarnámi.

19.11.2007

Heil og sæl í vinnunni

Heilsueflingarverkefnið Heil og sæl í vinnunni er nú formlega hafið á Íslandi. Verkefnið er unnið í samvinnu við önnur Evrópulönd og ber heitið Move Europe á ensku. Hér á landi hefur Vinnueftirlit ríkisins umsjón með verkefninu sem unnið er í nánu samstarfi við Lýðheilsustöð.

heil og sæl

Markmið verkefnisins er að auka vitund innan vinnustaða á mikilvægi þess að efla heilsu og forvarnir. Heilsuefling á vinnustöðum er góð fjárfesting í mannauði og skilar ávinningi fyrir vinnustaði jafnt sem starfsmenn. Ávinningur vinnustaða er meðal annars fólginn í minni kostnaði vegna veikinda, fjarvista og slysa ásamt því að framleiðni og nýsköpun eykst. Einnig hefur verið sýnt fram á að heilsuefling getur skilað sér í minni starfsmannaveltu. Ávinningur starfsmanna er hins vegar færri slys og sjúkdómar, bætt heilsa, aukin vellíðan og starfsánægja.

19.11.2007

Krafa um verulegar kjarabætur í komandi samningum

Á aðalfundi BSRB, haldinn föstudaginn 16. nóvember sagði Ögmundur Jónasson formaður BSRB um leið og hann mælti fyrir ályktun fundarins að menn yrðu að opna augu fyrir þeim alvarlega vanda sem blasti við innan almannaþjónustunnar. Víða væri orðið erfitt að manna störf og færi ástandið hríðversnandi. „Ef ekkert verður að gert blasir við neyðarástand. Það er á ábyrgð viðsemjenda okkar að semja um stórbætt kjör í komandi kjarasamningum enda sýna kannanir að starfsmenn innan almannaþjónustunnar eru að dragast  verulega aftur úr í launum. Ef starfsfólki innan almannaþjónustunnar verður ekki greitt kaup og búið að því eins og best gerist á launamarkaði horfir þar hreinlega til landauðnar á mikilvægu sviðum velferðarþjónustunnar." Í ályktun BSRB er sett fram krafa um verulegar kjarabætur  auk þess sem lögð er áhersla á að taka verði mið af þörfum fjölskyldunnar þegar samið er um kaup, vinnutíma og önnur kjör.

1.11.2007

Fræðsluvefur um lífeyrismál opnaður

Mánudaginn 29. október s.l opnaði Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, nýjan fræðsluvef Landssamtaka lífeyrissjóða um lífeyrismál. Vefslóðin er www.gottadvita.is Á heimasíðum flestra lífeyrissjóða er hnappur sem hægt er að smella á til að færast á fræðsluvefinn.

31.10.2007

Athugasemd vegna ályktunar stjórnar BSRB vegna málefna Orkuveitu Reykjavíkur, REI/GGE og Hitaveitu Suðurnesja.

Stjórn BSRB sendir frá sér ályktun um ofangreind málefni og dregur saman á heimasíðu sinni nokkur áhersluatriði úr henni. Þetta er einnig birt á heimasíðu St.Rv. Undirritaður leyfir sér af þessu tilefni að vekja máls á eftirfarandi atriðum

26.10.2007

Stjón BSRB skorar á borgaryfirvöld

Borgaryfirvöld ógildi samninga REI og GGE

Stjórn BSRB skorar á borgaryfirvöld í Reykjavík að ógilda þegar í stað samninga um sameiningu REI og GGE enda ekki rétt að þeim staðið. Auk þess krefst stjórn samtakanna þess að hætt verði við áform um hlutafélagavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur og kallar eftir breytingum á lögum sem komi í veg fyrir að einkaaðilar eignist náttúruauðlindir. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktun sem stjórn BSRB sendi frá sér í dag.

24.10.2007

Breyting á kjarasamningi við Reykjavíkurborg

Á Starfskjaranefndarfundi 22. október var samþykkt breyting á kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurborgar. Samþykktin fjallar um grein 1.3.2. í kjarasamningi og fjallar um mat á starfsaldir hjá Reykjavíkurborg en við bætist í greinina að meta eigi einnig starfstíma starfsmanns sem starfað hefur í sambærilegu starfi á föstu mánaðarkaupi hjá öðru sveitarfélagi eða ríki enda liggi staðfesting fyrri vinnuveitenda fyrir. Þetta ákvæði tekur gildi 1. nóvember 2007. Til skýringar þá fær starfsmaður metinn starfsaldur frá og með næstu mánaðarmótum eftir að hann hefur lagt fram staðfest gögn um starfstíma sinn.

24.10.2007

Tengsl undir- og yfirmanna. Hvað veldur, hver heldur?

Svo nefnist fyrirlestur sem Haukur Ingi Jónasson, sálgreinir og lektor í Háskóla Íslands heldur í boði Rannsóknastofu í vinnuvernd föstudaginn 26. október kl. 12.15 – 13.15. Fyrirlesturinn verður í Háskóla Íslands, Lögbergi stofu 201. 
Haukur Ingi fjallar um svokölluð sálræn forrit sem eru að verki í samskiptum undir- og yfirmanna. Hann ræðir um hvernig eldri reynsla mótar nýja reynslu og hvernig þetta getur bæði skapað vandamál og leitt til heilbrigðari samskipta á vinnustað. Fyrirlesturinn er ókeypis og opinn öllu áhugafólki um vinnuvernd.

18.10.2007

Kjara- og þjónustukönnun St.Rv.

Nú liggja fyrir niðurstöður könnunar félagsins á bæði kjörum félagsmanna auk þess sem félagið var að kanna viðhorf til starfssemi félagsins. Sláandi niðurstöður komu fram um kynbundinn launamun í könnuninni en þegar félagið er skoðað í heild er munurinn 16,2% en ef við skoðum félagsmenn sem starfa hjá Reykjavíkurborg er hann 14,9% og eru þetta mun hærri tölur en komu fram í könnun Reykjavíkurborgar frá árinu 2001. Úrtakið úr þeirri könnun voru allir starfsmenn Reykjavíkurborgar en hér eru einungis félagsmenn St.Rv.  Hér finnur þú skýrsluna í heild sinni.

 

17.10.2007

Starfslokanámskeið BSRB

logobsrb

Fræðslunefnd BSRB stendur fyrir starfslokanámskeiði í BSRB húsinu, að Grettisgötu 89, 1. hæð. Námskeiðið er í þrjú skipti og verður dagana 6. 7. og 12. nóvember frá kl. 16.30 - kl. 19.00. Vakin er athygli á því að námskeiðið er ætlað   meðal félagsmanna sinna sem eru farnir að nálgast starfslok eða hafa nýlega lokið störfum. Þátttöku þarf að tilkynna á skrifstofu BSRB í síma 525 8300 fyrir 2. nóvember 2007. Einnig er hægt að tilkynna þátttöku í netfangið bsrb@bsrb.is

Með fylgir dagskrá námskeiðsins.

2.10.2007

BSRB fundar með formanni Öryrkjabandalagsins


Sigursteinn Másson, formaður ÖBÍ, kom í dag á sameiginlegan fund  réttindanefndar og lífeyrisnefndar BSRB til að fjalla um hugmyndir sem fram hafa komið af hálfu ASÍ og SA um svokallaðan áfallatryggingasjóð og nýtt endurhæfingarkerfi fyrir öryrkja. Formaður Öryrkjabandalagsins sagði á fundinum að hér væri í reynd um að ræða nýtt framfærslukerfi til hliðar við almannatryggingakerfið og varaði við því að ef þessar hugmyndir yrðu að veruleika yrði við lýði í landinu kerfi mismununar. Annars vegar væru þeir sem tengdust þeim hluta vinnumarkaðarins sem aðild ættu að þessu fyrirkomulagi og síðan hinir sem þar stæðu fyrir utan.

27.9.2007

Hádegisfyrirlestur Rannsóknarstofu vinnuverndar

Gyða Margrét Pétursdóttir félags- og kynjafræðingur og doktorsnemi í Háskóla Íslands heldur fyrirlesturinn Skreppur og Pollýanna: Um ólíka möguleika og sýn kynjanna á samræmingu fjölskyldulífs og atvinnu í  hádegisfyrirlestrarröð Rannsóknastofu í vinnuvernd. Fyrirlesturinn verður föstudaginn 28. september kl. 12.15 - 13.15 í stofu 201 í Lögbergi, Háskóla Íslands.

26.9.2007

Alþjóðasamtök starfsmanna í almannaþjónustu

28. þing Alþjóðasamtaka starfsmanna í almannaþjónustu, Public Services International, hófst í Vínarborg í gær, 24. september. Samtökin fagna 100 ára afmæli sínu um þessar mundir. Þingið stendur til 28. september. Á þinginu eru komnir saman 1500 fulltrúar frá öllum heimshornum og eru fulltrúar BSRB þar á meðal.

25.9.2007

Kvikmyndahátíð í Reykjavík

Alþjóðleg kvikmyndahátíð fer nú fram í Reykjavík í fjórða skipti hefst hún 27. sept. og er til 7. október. Starfsmannafélögum er boðið að kaupa miða handa starfsfólki  á sérstökum afsláttarkjörum. Ef fjöldinn fer yfir 20 manns eru boðin 15% afslátt af stökum miðum sem kosta 900 kr. án afsláttar, af klippikortum á 8 myndir sem kosta 4500 án afsláttar og pössum sem kosta 6000 krónum án afsláttar sem gildir á allar myndir. Sjá allt um hátíðina á http://www.filmfest.is/

gullni lundinn

14.9.2007

Seinkun á útsendingu Fréttabréfs

Því miður hefur orðið seinkun á því að senda félagsmönnum Fréttabréf félagsins. Ástæður þess eru miklar annir  á launaskrifstofu Reykjavíkurborgar sem hafa orsakað að félaginu hefur ekki borist félagaskrá. Við viljum hér vekja athygli á því að skráning á námskeiðin "Gott að vita" eru hafin. Einnig er hægt að sjá Fréttabréfið í rafrænu formi á heimasíðunni.   

13.9.2007

Námsframboð Félagsmálaskólans

Námsskrá Félagsmálaskóla alþýðu fyrir haustönn 2007 er nú tilbúin. Boðið er upp á ýmis námskeið sem gagnast launafólki í lífi og starfi. Annars vegar er um að ræða styttri námskeið sem eru eina dagstund og hins vegar tveggja daga námskeið. Meðal þess sem í boði er eru námskeið um jafnrétti og námshvatningu á vinnustað, námskeið um samningatækni, undirbúning kjarasamninga og lífið í Karphúsinu. Þá er í boði námskeið í ensku talmáli auk grunn- og framhaldsnámskeiðs fyrir trúnaðarmenn.

5.9.2007

Vika símenntunar

 

Vika símenntunar verður haldin 24.-30. september 2007. Markmið viku símenntunar er að auka símenntun í atvinnulífinu og hvetja fólk til að leita sér þekkingar alla ævi. Í viku símenntunar 2007 er lögð áhersla á að ná til þeirra sem hafa litla formlega menntun og hvatt til þess að huga sérstaklega að læsi og lestrarörðugleikum á vinnustað.

29.6.2007

Sumarhópur Vinnumiðlunar ungs fólks

Vinnumiðlun ungs fólks er með þá nýbreyttni í sumar að vera með starfandi hóp ungs fólks með það hlutverk að skipuleggja viðburði og gefa út rafrænt fréttabréf. Fréttabréfið sem kallast Rafbrot er sent öllu sumarstarfsmönnum hjá Reykjavíkurborg á aldrinum 17-25 ára. Sumarhópurinn mun kynna sér hin ýmsu

22.6.2007

Ferð í Þórsmörk

Hin árlega ferð eftirlaunahóps Starfsmannafelags Reykjavíkurborgar verður farin 26. Júní. Lagt verður af stað frá Grettisgötu 89 kl. 8:30 og haldið verður í Þórsmörk, þar verður snætt nesti sem fólk tekur með sér. Þórunn Þórðardóttir mun leiða hópinn af sinni alkunnu snilld um Fljótshlíðina og Suðurlands undirlendið. Í lok dags verður snætt í Rauða húsinu á Eyrabakka.
Skráning í síma 525-83330 eða hér á síðunni.  Ferðin kosta 4000 kr. á mann. Þeir sem vilja greiða með greiðslukorti eru vinsamlega beðnir um að greiða í síðasta lagi 22. júní.

19.6.2007

Samkomulag við Reykjavíkurborg um upplýsingar og samráð

 

 

 

 

 

 

 

 

14. júní sl. var undirritað samkomulag milli aðildarfélaga BHM, BSRB og KÍ annars vegar og Reykjavíkurborgar hins vegar um fyrirkomulag á samráði og upplýsingamiðlun vegna starfsmanna borgarinnar. Samkomulagið tekur gildi 1. júlí nk. Markmið þess er að koma á skilvirku samráði með hagsmuni beggja aðila, borgarinnar og starfsmanna hennar, að leiðarljósi. Með samráðinu gefst tækifæri til að auka þátttöku fulltrúa starfsmanna í ákvörðunum sem varða störf borgarstarfsmanna, stöðu þeirra og atvinnuöryggi.

14.6.2007

Móttaka í Höfða

Í gærkvöldi tók borgarstjóri Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson á móti 100 manna norrænum hóp sem eru fulltrúar úr bæjarstarfsmannafélaögum frá norðurlöndunum. Vilhjálmur hélt ræðu og sagði fólki frá Höfða og þeim merku hlutum sem þar höfðu farið fram. Vilhjálmur talaði um að samtök opinberra starfsmanna NTR gengdi lykilhlutverki innan höfuðborga norðurlandanna. Ekki aðeins varðandi gagnvart réttindum starfsmanna heldur einnig í því að breyta

14.6.2007

Ráðstefna NTR í Reykjavík

Nýjungar í opinberri þjónustu er yfirskrift ráðstefnu NTR, Nordisk Tjänstemannaråd, sem hófst með móttöku Reykjavíkurborgar í Höfða í gærkveldi. NTR eru samtök starfsmannafélaga sveitarfélaga á Norðurlöndum. Ögmundur Jónasson formaður BSRB er núverandi formaður samtakanna.

21.5.2007

Starfsdagur fulltrúaráðs

starfsdagur fulltrúaráðs Þriðjudaginn 15. maí mætti glæsilegur hópur fulltrúa í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar til starfa á starfsdegi. Markmiðið með þessum fundi var að fulltrúar kæmu að því að móta stefnu félagsins til næstu ára. Klukkan 10 mætti Ragna Benidikta Garðarsdóttir frá Félagsvísindastofnun HÍ og kynnti fyrstu niðurstöður Kjara- og þjónustukönnunar

16.5.2007

Uppsögn dæmd ólögleg

Hæstiréttur hefur dæmt uppsögn tölvunarfræðingsins Salmann Tamimi ólöglega en Landspítalinn háskólasjúkrahús sagði honum upp vegna skipulagsbreytinga. Áður hafði héraðsdómur dæmt uppsögnina löglega. Salmann Tamimi er félagsmaður í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar.

11.5.2007

Icelandic for foreigners

Icelandic for foreigners - Framvegis símennturnarmiðstöð heldur námskeið í íslensku  í samvinnu við Alþjóðahús. Námskeiðin eru bæði fyrir byrjendur og lengra komna, eða íslenska 1, 2 og 3. Við hvetjum erlenda félagsmenn til þess að kynna sér málið og bendum á að þeir geti sótt um styrk í starfsmenntasjóð félagsins.

4.5.2007

Fundurinn ungir kjósa á netinu

Fundur sem haldinn var sl. laugardag þar sem ungu fólki var boðið að spyrja fulltrúa frá þeim flokkum sem bjóða fram í kosningum í vor. Fundurinn var tekinn upp og sýndur beint en nú er búið að hlaða honum inn á netið, http://straumur.nyherji.is/rvk.asp. Við hvetjum fólk til þess að kíkja á fundinn.

25.4.2007

Ég styð öfluga almannaþjónustu fyrir alla

Taktu þátt í undirskriftaherferð evrópskrar verkalýðshreyfingar til eflingar almannaþjónustunni! Leiðbeiningar. Þú smellir hér og þá blasa við þrír gluggar:
Í þann fyrsta skrifar þú nafn þitt
Í þann næsta tölvupóstfangið þitt
Fyrir land velur þú “Iceland”
Þú færð síðan sendan tölvupóst til staðfestingar undirskriftinni, opnar hann og smellir á viðeigandi línu.

24.4.2007

19200 - Ungt fólk kýs

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar í samstarfi við SFR - stéttarfélag og Hitt húsið  halda fund fyrir ungt fólk í Tjarnarbíói á laugardaginn 28. apríl kl. 16-18. Á fundinum fær ungt fólk á aldrinum 16-25 að spyrja úr sal fulltrúa frá öllum framboðum spjörunum úr, en einnig er hvatt til

að senda spurningar til frambjóðenda bæði fyrir fund og á meðan honum stendur á netfangið ungtfolkkys@gmail.com

Fundarstjórar verða þau Halla Gunnarsdóttir og Sölvi Tryggvason. 

Fundurinn verður tekinn upp og hann sendur út á netinu á slóðinni http://straumur.nyherji.is/rvk.asp.

Fulltrúar flokkanna verða; Guðjón Ólafur Jónsson frá Framsóknarflokki, Valdimar Leó Friðriksson frá Frjálslynda flokki, Margrét Sverrisdóttir frá Íslandshreyfingunni, Ágúst Ólafur Ágústsson frá Samfylkingunni, Birgir Ármannsson frá Sjálfstæðisflokki, Katrín Jakobsdóttir frá Vinstri grænum.

20.4.2007

Fulltrúaráðsfundur

Þriðjudaginn 17. apríl var haldinn fulltrúaráðsfundur í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar. Á fundinn fengum við góðann gest, Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar en hann fjallaði um ný lög á vinnumarkaði og verkefni Vinnumálastofnunar. Hann fékk fjölmargar spurningar í lokin, en þetta var afar fræðandi fyrir fulltrúa félagins.

22.3.2007

Fjölmennur hádegisfyrirlestur

Fjallað var um launamun kynjana á hádegisverðarfundi í dag í húsi BSRB. St.Rv. og SFR voru með sameiginlegann hádegisfróðleik fyrir félagsmenn þar sem Hildigunnur Ólafsdóttir hagfræðingur BSRB fjallaði um baráttuna

12.3.2007

Aðalfundur St.Rv.

Aðalfundur var haldinn í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar laugardaginn 10. mars kl. 13. Auk venjubundinna aðalfundarstarfa og lagabreytinga voru samþykktar þrjár ályktanir sem voru bornar fram af stjórn félagsins.

 

9.3.2007

Íslenski dansflokkurinn með tilboð til félagsmanna

Íslenski dansflokkurinn býður félagmönnum afsláttartilboð á sýninguna "Í okkar nafni" almennt verð er 2.900 en félagsmönnum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar býðst að kaupa 2 miða á 4000 kr.  Sýningar verða út mars. Miðapantanir í síma 568 8000 eða midasala@borgarleikhus.is

8.3.2007

Fréttabréf með ársskýrslu og orlofshúsum

Nú fer félagsmönnum að berast Fréttabréf félagsins sem inniheldur, auk ársskýrslu, orlofskosti sem félagið býður upp á þetta sumar. Þau leiðu mistök urðu að upplýsingar um eitt af sumarhúsunum sem félagið leigir þetta sumar féll niður við uppsetningu blaðsins, en það er orlofshúsið Ásar. Hér getið þið fengið upplýsingar um það.

8.3.2007

Síðustu forvöð

Nú eru síðustu forvöð fyrir félagsmenn að sækja um flugávísanir frá Iceland Express. Það er hægt að sækja um fram til 9. mars en 10. mars verða dregnir út þeir félagsmenn sem geta keypt miða á þessum afslætti. Sótt er um á netfangið strv@bsrb.is

6.3.2007

Máttur á milli landa - alþjóðlegur baráttudagur kvenna

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er á fimmtudaginn 8. mars. Í tilefni þess verður haldinn fundur á Grand Hótel - Hvammi frá kl. 11:45-13 undir heitinu Máttur á milli landa -beislum mannauðinn!
Þeir sem flytja erindi eru Gunhilde Raske, mannfræðingur frá Dannmörku, Sigrún Jóhannesdóttir, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Sæunn Stefánsdóttir, formaður innflytjendaráðs. Fundarstjóri: Amal Tamimi frá Alþjóðahúsi.

Í upphafi fundar er borin fram  súpa, gratinerað brauð og kaffi. Verð 1.750 kr.

1.3.2007

Kjara- og þjónustukönnun enn í gangi

kjarakonnun3

Fimmtánhundruð félagsmönnum voru send bréf, vegna kjara- og þjónustukönnunar Starfsmanna-félags Reykjavíkurborgar, í byrjun febrúar sl. Í bréfinu var tilkynnt að þeir hafi verið í úrtaki félagsmanna sem haft verði samband við símleiðis í kjölfarið. Könnunin hefur tekið nokkuð lengri tíma en reiknað var með og er enn verið að hringja í félagsmenn og verður eitthvað áfram. Þannig að við óskum eftir að félagsmenn sem fengu bréf en ekki hefur enn verið haft samband haldi febrúar launaseðli til haga og hvetjum þá til þess að taka þátt þó dráttur hafi orðið á viðtölunum.

24.2.2007

Úrslit kosninga til stjórnar

Kosningar í stjórn St. Rv. fóru þannig að Ragnhildur Helgadóttir, Þórdís Sigurðardóttir, Þóra Sigurðardóttir, Jón Ingi Hilmarsson og Víglundur Rúnar Jónsson náðu kjöri til næstu tveggja ára í stjórn. Þau hafa öll setið í stjórn áður. En Grétar Bjarnason sem bauð sig fram í fyrsta skipti til stjórnar náði ekki kjöri. Kosningin var þó naum. Kjörsókn var dræm í þessum kosningum.  

20.2.2007

Trúnaðarmannanámskeið í Munaðarnesi

Grunnnámskeið fyrir trúnað­armenn í Munaðarnesi dagana 6. og 7. mars. Dagskrá námskeiðsins verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Þátttakendur á námskeiðinu mæta í Munaðarnesi á hádegi þriðjudagsins 6. mars og fer rúta frá BSRB-húsinu, Grettisgötu 89, kl. 10.00. Námskeiðinu lýkur síðdegis 7. mars. Rútan fer frá Munaðarnesi kl. 17.15. Þeir sem hafa áhuga á þátttöku eru beðnir að hafa samband við skrifstofu BSRB, Grettisgötu 89, í síma 525 8300 fyrir 2. mars.

20.2.2007

Fulltrúaráðsfundur

fulltruarad feb 07

Fulltrúaráð Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar fundaði í dag þriðjudaginn 20. febrúar kl. 13 að Grettisgötu 89. Á fundinn kom Sólveig Jónasdóttir frá Alþjóðahúsi og sagði frá starfssemi alþjóðahúss og fór hún yfir stöðu innfytjendamála á Íslandi og þeim skyldum sem trúnaðarmenn og fulltrúar stéttarfélaga hafa gagnvart erlendum samstarfsmönnum. Auk erindis Sólveigar kynnti stjórn tillögur stjórnar til lagabreytinga á aðalfund félagsins sem verður haldinn 10. mars nk. Garðar Hilmarsson formaður félagsins fjallaði um þau verkefni sem eru í vinnslu og á döfinni hjá félaginu.

16.2.2007

Tilboð í leikhús fyrir félagsmenn

Leikhópurinn Á senunni og Hafnarfjarðarleikhúsið
Abbababb! eftir Dr. Gunna

Leikhópurinn Á senunni býður félögum í starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar tilboð á hinn frábæra og bráðfjöruga fjölskyldusöngleik Abbababb! eftir Dr. Gunna í leikstjórn Maríu Reyndal.  Abbababb! var frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu sunnudaginn 11. febrúar við gríðarleg fagnaðarlæti frumsýningargesta.  Meðal leikara eru Jóhann G. Jóhannsson, Sigurjón Kjartansson, Álfrún Helga Örnólfsdóttir og Atli Þór Albertsson.

15.2.2007

Kjaramál á Akranesi

Mikil ólga hefur verið hjá félagsmönnum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem starfa hjá Akraneskaupstað því það er skilningur okkar að bókun sú sem samþykkt var í bæjarráði síðastliðið vor innihéldi loforð um að bæjarstjórn Akraness myndi taka upp kjarasamninga sem í gildi eru og færa þá nær þeim kjarasamningi

15.2.2007

Námskeið fyrir félagsmenn af erlendum uppruna

                                                                                                   - Nýtt  

Íslenskt samfélag og menning - námskeið fyrir félagsmenn af erlendum uppruna 
Icelandic society and culture – a course for non-Icelandic members             

Tími:
6., 8. og 13. mars (þri. og fim.) kl. 19:30-22.        Skrá mig /Registration
Lengd: 7 ½  klst.
Staður:
Grettisgötu 89, 1. hæð
Leiðbeinendur: Dr. Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur og M.A. Renata Peskova Emilsson, tungumálakennari og þýðandi.
Þátttökugjald kr. 1.000.-

Lýsing:
Fjallað verður um hvað einkennir íslenskt samfélag ásamt fróðleiksmolum úr fortíðinni. Af hverju eru Íslendingar eins og þeir eru. Í seinni hlutanum verður komið inn á kjarasamninginn, réttindi og skyldur og hlutverk stéttarfélaga.  Einnig verða lykilstofnanir samfélagsins kynntar.

Descripton: The course will be divided into two parts. One will be concerned with Icelandic society and culture, being Icelandic and surviving in Iceland as a foreigner. The other part will include „bits and pieces" about Iceland with focus on the trade union, rights and duties in the work place, employment contracts and important institutions that help practical orientation in Iceland.

9.2.2007

Stjórnarkjör 2007

Nú er frestur til framboðs til stjórnarkjörs í stjórn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar runnin út. Auk þeirra sem uppstillingarnefnd stillti upp þ.e. Jóni Inga Hilmarssyni, Ragnhildi Helgadóttur, Víglundi Rúnari Jónssyni, Þóru Sigurðardóttur og Þórdísi Eygló Sigurðardóttur, hefur Grétar Bjarnasson sem starfar hjá Skipulags- og byggingasviði boðið sig fram. Því mun fara fram kosning til stjórnar St.Rv., þar sem sex frambjóðendur eru í þau fimm sæti sem kosið er um, 22. og 23. febrúar. Kosningin verður auglýst nánar síðar.

6.2.2007

Þökkum góðar viðtökur við kjara- og þjónustukönnun félagsins

Þessa dagana er Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands að gera kjara- og þjónustukönnun, á vegum félagsins, meðal félagsmanna þar sem bæði er spurt um þjónustu félagsins og um kjaramál. Markmiðið með slíkri skoðanakönnun er að auka vitneskju um þarfir félagsmanna og að undirbúa okkur undir næstu kjarasamninga. Það verður haft samband við 1500 félagsmenn og þeir beðnir um að svara. Símhringingar til félagsmanna fóru af stað á föstudaginn 2. febrúar og munu halda áfram fram í mánuðinn. 
Félagsmenn hafa tekið vel á móti símnhringingarfólki og verið jákvætt að taka þátt en það er nauðsynlegt til þess að vel megi takast til. Þökkum við félagsmönnum  góðar viðtökur.

6.2.2007

Umsóknir um flugávísanir

Félagsmenn hafa sýnt mikinn áhuga á að sækja um flugávísanir frá Iceland Express. Það er hægt að sækja um fram til 9. mars en 10. mars verða dregnir út þeir félagsmenn sem geta keypt miða á þessum afslætti. Sótt er um á netfangið strv@bsrb.is

 

31.1.2007

Uppstilling til stjórnar

Uppstillingarnefnd hefur nú lokið störfum og stillt upp til stjórnar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Verið er að senda út á vinnustaðina auglýsingu um uppstillinguna.

 

18.1.2007

Samkomulag um sameiningu

Akranes_baejarstjori ofl

 

 

 

 

 

 


Í dag hittust stjórnir St.Ak. og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar til þess að skrifa formlega undir samkomulag um sameiningu félaganna. En félaögin tvö sameinst undir nafni Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og munu lög þess félags gilda, félagið tekur við öllum skuldbindingum og samningsumboði fyrir félagsmenn fyrrum St.Ak. Garðar Hilmarsson formaður St.Rv. greindi frá því á fundinum að hann, Jakobína Þórðardóttir varaformaður félagsins og Valdimar Þorvaldsson hefðu farið á fund Gísla Einarssonar bæjarsjóra Akraness og Jóns Pálma Pálssonar bæjarritara sl. þriðjudag.

11.1.2007

Fulltrúaráðsfundur

Fundur hjá fulltrúaráði Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var haldinn sl. þriðjudag, 9. janúar. Á dagskrá fundarinns var meðal annars að kjósa fulltrúa í uppstillingarnefnd félagsins og svo flutti Erna Guðmundsdóttir lögfræðingur BSRB erindi um -Hvaða meginreglur gilda um persónuvernd starfsmanna ? -Heimild atvinnurekanda til eftirlits með tölvupósts og netnotkun starfsmanna-. Erindið vakti upp fjölmargar spurningar fundarmanna. Þess má geta að það var góð mæting trúnaðarmanna frá Akranesi og voru þeir sérstaklega boðnir velkomnir. Stjórn St.Rv. hyggst fara á Akranes næstkomandi fimmtudag og undirrita sérstakt samkomulag um sameininguna sem átti eftir að ganga frá formlega.

2.1.2007

Sameining

Nú um áramótin sameinaðist Starfmannafélag Akranes (St.Ak.)  Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar (St.Rv.).
Sú þjónusta sem verið hefur á Akranesi heldur áfram í óbreyttri mynd, en þar starfar Oddný Erla Magnúsdóttir í 25% starfshlutfalli. Auk þess geta félagsmenn á Akranesi leitað á skrifstofu sameinaðs félags en aðalskrifstofa félagsins er að Grettisgötu 89, 3 hæð. Næstu daga og vikur verður gengið frá ýmsum bæði framkvæmdartriðum sem snúa beint að félagsmönnum og formsatriðum varðandi sameininguna.  Heimasíða St.Ak mun til þess að byrja með halda sér þangað til síður hafa verið sameinaðar. www.stakakranes.com

2.1.2007

Fjör á jólaballi

jolaball4

Jólaball Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR sem haldið var síðastliðinn föstudag var í alla staði vel heppnað og mikið fjör.  Þar voru mættir prúðbúnir félagsmenn með börn og barnabörn tilbúin í dansinn.
Hljómsveitin Saga Klass hélt uppi fjörinu og börn og fullorðnir skemmtu sér konunglega. Jólasveinar komu í heimsókn, dönsuðu með gestum og kvöddu börnin með sælgætispoka að gjöf í lokin.

2.1.2007

Vinnutímabók og félagsskírteini

Nú á öllum félagsmönnum að hafa borist í pósti félagskírteini með afsláttarhefti þar sem fram koma þær verslanir og þjónustuaðilar sem veita félagsmönnum afslátt af vörum og þjónustu og vinnutímabók fyrir árið 2007 um sl. áramót....




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English