| Sigursteinn Másson formaður Geðhjálpar flytur fyrirlestur í BSRB húsinu sem nefnist “Andleg sjálfsvörn” fimmtudaginn, 4. febrúar kl. 16. Fyrirlesturinn Fyrirlesturinn er hugsaður sem andsvar við tvíhyggju þ.e.a.s. aðgreiningu líkama og sálar. Fjallað er um leiðir til að vernda geðheilbrigði og varnir gegn neikvæðum hugsunum og áreiti í samskiptum fólks. Einnig er farið yfir hugrænar leiðir til að ná utan um eigið hlutverk og tilgang á mismunandi tímabilum í lífi fólks. Fjallað er um óttann og það sem raunverulega skiptir máli í lífinu. Fyrirlesturinn er afar athyglisverður og uppbyggjandi á erfiðum tímum. |
![]() |
| Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar stóð fyrir smásagnasamkeppni nýlega. Það bárust 11 sögur í keppnina. Dómnefnd var skipuð þeim Davíði Stefánssyni, Dagnýju Guðmundsdóttur og Stefáni Pálssyni. Niðurstaða dómnefndar var að sagan „Grafið í sand“ varð í fyrsta sæti, höfundur hennar er Jónína Óskarsdóttir sem starfar á Ársafni. Sagan „Hjá ömmu“ eftir Ingibjörgu Hafliðadóttir sem starfar á aðalsafni Borgarbókasafns var í öðru sæti. Í þriðja sæti var sagan „Fiskur á þurru“ eftir Helga M. Sigurðsson sem starfar á Sjóminjasafninu. Fyrir stuttu fór fram verðlaunaafhending til sigurvegara í samkeppninni og óskum við vinningshöfum innilega til hamingju. |