Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

26.1.2011

Uppsilling til stjórnar

Uppstillingarnefnd félagsins hefur lokið störfum og gert eftirfarandi tillögu til uppstillingar í stjórnar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.  Í stjórn til tveggja ára: Ása I. Hauksdóttir, Skólavörðustíg 4 C, Reykjavík, Gunnar Rúnar Matthíasson, Bræðratungu 32, Kópavogi, Ingjaldur Eiðsson, Logafold 178, Reykjavík, Jón Bergvinsson, Sautjándajúnítorgi 3, Garðabæ og Þórdís Björk Sigurgestsdóttir, Kársnesbraut 105, Kópavogi. Fyrir í stjórn eru: Garðar Hilmarsson formaður, Engjaseli 31, Reykjavík. Aðrir í stjórn: Guðríður Sigurbjörnsdóttir, Norðurbakka 23, Hafnarfirði, Guðrún Árnadóttir, Bollagötu 16, Reykjavík, Ingveldur Jónsdóttir, Grenigrund 10, Akranesi, Jónas Engilbertsson, Hólabergi 2, Reykjavík, Sigrún Helga Jónsdóttir, Salthömrum 3, Reykjavík. Önnur framboð, ásamt meðmælum 75 lögmætra félagsmanna hið minnsta (með nafni, kennitölu og vinnustað), þurfa að berast til undirritaðs eigi síðar en kl. 16.00 miðvikudaginn 9. febrúar 2011. Auglýsing

26.1.2011

Launakönnun Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar

Ákvörðun var tekin í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar að taka þátt í launakönnun nú á vorönn.  Capasent framkvæmir könnunina  sem er unnin með sama hætti og í samvinnu við SFR –stéttarfélag og VR. Úrtakið í könnuninni eru allir félagsmenn sem eru í  50% starfi eða meira.  Þannig að félagsmenn mega eiga von á því að fá símtal frá Capasent á næstunni. Það verður áhugavert að fá viðmiðun við launasetningi þessarra  tveggja félaga sem eru með félagsmenn sem sinna í mörgum tilfellum sambærilegum störfum og félagsmenn eru í innan Starfsmannafélgs Reykjavíkurborgar.

13.1.2011

BSRB vill fjöskylduvænna samfélag

Í frétt á heimasíðu BSRB kemur fram að  BSRB berst fyrir styttingu vinnuvikunnar í 36 stundir í dagvinnu til að skapa fjölskylduvænna vinnuumhverfi. Þetta er á meðal þeirra verkefna sem aðildarfélögin hafa falið bandalaginu að berjast fyrir, ásamt með lífeyrismálum, því að tryggja framlög í Mannauðspott og að réttur til hlutveikinda verði viðurkenndur, svo eitthvað sé nefnt. Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, segir í samtali við Fréttablaðið að með styttri vinnuviku skapist fjölskylduvænna samfélag. Sjá nánar

13.1.2011

Nýr orlofsvefur opnaður

Nú hefur nýr orlofsvefur verið tekinn í gagnið og er það von okkar að það muni auðvelda félgasmönnum að bóka sér orlofshús og íbúðir félagsins.
Þeir félagsmenn sem ekki nota kreditkort þurfa að hafa samband við skrifstofu til þess að ganga frá pöntun. Við minnum á að þú finnur félaganúmer/lykilorð á félagsskírteini sem sent var félagsmönnum með Fréttabréfi í desember sl.

11.1.2011

Góð skráning á starfslokanámskeið

Félagsmálaskóli BSRB stendur fyrir starfslokanámskeiði á höfuðborgarsvæðinu dagana 31. janúar til 2. febrúar 2011. Námskeiðið verður frá kl. 16.30 til kl. 19.00 hvert kvöld og er haldið í húsnæði BSRB Grettisgötu 89, 1. hæð. Námskeiðið er opið öllum félagsmönnum í aðildarfélögum BSRB sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu og mökum þeirra. Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem eru að nálgast starfslok eða eru nýlega hættir störfum. Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 26. janúar á skrifstofu BSRB, í síma 525-8300, eða á netfangið bsrb@bsrb.is Námskeiðið er frítt fyrir alla félaga í aðildarfélögum BSRB og maka þeirra.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English