Fram kemur á á vef BSRB að bandalagið telur þá ákvörðun kjararáðs að draga til baka launalækkanir hjá ráðherrum, þingmönnum og embættismönnum einnig hljóta að vera fordæmisgefandi fyrir félagsmenn BSRB. Í kjölfar efnahagshrunsins missti fjöldi félagsmanna bandalagsins vinnuna og aðrir þurftu að taka á sig tímabundnar launalækkanir og skert starfshlutfall. Nú hefur kjararáð riðið á vaðið og leiðrétt þessar tímabundnu launalækkanir hjá ákveðnum hópi opinberra starfsmanna og krefst BSRB þess að leiðréttingar á kjörum félagsmanna bandalagsins muni einnig koma til framkvæmda hið fyrsta. Mun BSRB í kjölfarið fara fram á viðræður við fjármálaráðherra um hvernig staðið verði að þeim leiðréttingum. Sjá nánar
http://www.bsrb.is/um-bsrb/frettir/nr/2079/
Fundur fulltrúaráðs St.Rv. haldinn 15. desember 2011 leggur áherslu á mikilvægi þess afnotaréttar að landsvæði við Úlfljótsvatn, sem borgarráð gaf félaginu árið 1969, og stendur heilshugar að baki stjórn félagsins við að verja hann.
Stór hópur fulltrúa mætti á fund félagsins í dag. Meðal efnis sem farið var yfir á fundinum voru viðræður sem Orkuveitan og Reykjavíkurborg eiga í núna vegna fyrirhugaðrar sölu Orkuveitunnar á landi því við Úlfljótsvatn sem félagin var gefið til afnota á 40 ára afmæli félagsins árið 1966. Formaður upplýsti fulltrúaráðið um gang mála og áhyggjur félagsins af málinu og var samþykkt einróma ályktun fulltrúaráðs. Í lok fundar las Hallgrímur Helgason upp úr bók sinni Kona við 1000° og gerði mikla lukku.
Blað stéttarfélaganna sem gefið er út af St.Rv. og SFR er nú í prentun og ætti að berast félagsmönnum fyrir jól. Efni blaðsins er fjölbreytt að venju. Þar má m.a. finna viðtal við Gissur Pétursson forstjóra Vinnumálastofnunar, grein um nýsköpun í opinberum rekstri, jólabókahugleiðing eftir Úlfhildi Dagsdóttur, heimsókn til trúnaðarmanna á Landspítalanum, frásögn nokkurra matreiðslumanna um ferð þeirra til Finnlands og margt fleira. Með blaðinu fylgir vinnutímadagbók félagsins sem vonandi mun nýtist vel.
![]() |
Jólaball félagsins verður haldið að Gullhömrum fimmtudaginn 29. desember kl. 17. Sala miða hefst í dag 6. desember, en miðinn kostar 700 kr fyrir bæði börn og fullorðna. |
Þriggja daga trúnaðarmannanámskeið St.Rv. og SFR var haldið í síðustu viku. Hópur nýrra og eldri trúnaðarmanna beggja félaga tóku þátt og gerðu að námskeiðinu góðan róm. Meðal þess sem farið var yfir á námskeiðinu var kynning á félögunum og lífeyrissjóðunum, þjálfun í kjarasamningum og leiðtogaþjálfun sem þau Þórkatla Aðalsteinsdóttir og Einar Gylfi Jónsson sáu um. Að öðru leyti er kennsla í höndum starfsmanna félaganna.