| Verkefnið vinnandi vegur sem er á vegum samráðshóps stjórnvalda, stjórnmálaflokka og aðila vinnumarkaðarins um menntun og vinnumarkaðsúrræði er nú lögð af stað með að hrinda í framkvæmd aðgerðum sem eiga að tryggja allt að 1.500 atvinnuleitendum störf og starfstengd úrræði. Sérstök áhersla er lögð á hvata og úrræði fyrir langtíma atvinnulausa. Átakið hefur hlotið nafnið VINNANDI VEGUR. Atvinnuleitendur eru hvattir til þess að mæta í Laugardalshöllina 8. mars nk. |
Frestur til þess að koma með framboð til stjórnarkjörs í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar rann út sl. föstudag, 10. febrúar. Engin mótframboð bárust, þannig að tillaga uppstillingarnefndar að skipan í stjórn félagsins stendur. Sjá auglýsingu
Uppstillinganefnd Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar hefur gert eftirfarandi tillögur um félagsstjórn fyrir næstu tvö árin, Formaður: Garðar Hilmarsson, Engjaseli 31, Reykjavík.
Í stjórn til tveggja ára: Guðríður Sigurbjörnsdóttir, Norðurbakka 23 Hafn., Herdís Jóhannsdóttir, Veghúsum 13 Rvk., Ingveldur Jónsdóttir, Grenigrund 10 Akranesi, Jónas Engilbertsson, Hólabergi 2 Reykjavík og Sigrún Helga Jónsdóttir, Salthömrum 3 Rvk. Önnur framboð, ásamt meðmælum 75 lögmætra félagsmanna hið minnsta (með nafni, kennitölu og vinnustað), þurfa að berast til félagsins eigi síðar en kl. 16.00 föstudaginn 10. febrúar n.k. sjá auglýsingu