Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

31.8.2010

Náms- og starfsráðgjöf,

Fræðslusetrið Starfsmennt býður félagsmönnum aðildarfélaga BSRB upp á náms- og starfsráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu. Ráðgjöfin nýtist fólki á öllum aldri til að viðra hugmyndir sínar um nám og starfsþróun og er sérstaklega mikilvæg þeim sem nú takast á við breytingar á vinnumarkaði.  Ráðgjöfin nýtist einnig öllum þeim sem á einhvern hátt standa á tímamótum og eru að takast á við breytt hlutverk eða verkefni. 

Atvinnuleitendur hafa flestir fengið  ráðgjafaviðtöl þar sem fólk hefur verið hvatt til að nýta tímann til að mennta sig enn frekar og auka þannig líkur á að landa nýju starfi.  Þeim stendur nú til boða að óska eftir nýju viðtali til að fara yfir framvinduna og horfa enn frekar til framtíðar.  Náms- og starfsráðgjöf nýtist þó öllum óháð aldri eða stöðu sem sjálfsögð þjónusta á sviði símenntunar. Ef þessi þjónusta hentar þér þá hafðu samband og  skoðaðu stöðu þína, möguleika og stefnu með aðstoð ráðgjafa.

Hvað er náms- og starfsráðgjöf?

  • Aðstoð við að átta sig á áhuga sínum og tengja við nám og störf
  • Aðstoð við að þekkja veikleika og styrkleika og efla starfshæfni
  • Aðstoð við að vega og meta hin ýmsu störf og starfssvið
  • Aðstoð við að útbúa ferilskrá og atvinnuumsókn
  • Aðstoð við að leita að áhugaverðu tómstundastarfi eða námi
  • Aðstoð við að efla sjálfstraust eftir áföll í námi eða starfi
  • Aðstoð við að bæta samskipti og samstarfshæfni
  • Aðstoð við að læra að setja mörk og stjórna tilfinningum í starfi
  • Aðstoð við forgangsröðun, skipulag og tímastjórnun

Hægt er að panta einstaklingsviðtal hjá náms- og starfsráðgjafa á Skrifstofu Fræðslusetursins Starfsmenntar í síma 525 8395 og fara þau þar fram á Grettisgötu 89, 105 Reykjavík.  Ráðgjafar Starfsmenntar hafa allir víðtæka reynslu af vinnu með fullorðnum og þekkingu á störfum og starfsumhverfi.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English