Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

13.1.2012

BSRB, KÍ og BHM vara við tilfærslu á málefnum atvinnuleitenda

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRBStjórnvöld undirbúa nú tilraunaverkefni sem felur í sér að stéttarfélög taka að sér hluta af þjónustu atvinnuleitenda. BSRB, KÍ og BHM vara eindregið við því að þessi leið verði farin og óttast að fyrirkomulagið verði til að skerða bolmagn Vinnumálastofnunar til að sinna starfi sínu.

„Við teljum að þarna verði mismunun á milli stéttarfélaga um þjónustu við atvinnuleitendur.Við viljum að þjónusta við atvinnuleitendur sé hluti af velferðarkerfinu og það sé haldið utan um það á einum og sama stað, einu og sama borði,“ segir Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB.

Elín segir jafnframt að með þessu sé verið að dreifa þekkingu, kunnáttu og fjármunum.Slíkt hafi óhjákvæmilega áhrif á starfsemi Vinnumálastofnunar.

„Það er þá verið er að skerða þá þjónustu sem þar er fyrir, og við teljum þvert á móti að það skipti máli eins og staðan er í dag að  efla frekar starf Vinnumálastofnunar en hitt,“ segir Elín enda atvinnuleysi í hámarki.

BSRB, KÍ og BHM leggjast því alfarið gegn því að atvinnuleitendur verði flokkaðir á grundvelli félagsaðildar í stéttarfélög þegar kemur að þjónustu til atvinnulausra. Það er jafnframt skoðun samtakanna að málefni atvinnuleitenda séu opinbert velferðarverkefni þar sem gæta þurfi jafnræðis og því sé farsælast að opinber aðili hafi yfirumsjón með því.




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English