Launakönnun og Stofnun ársins – munið að svara
St.Rv. leggur nú annað árið í röð af stað með launakönnun fyrir félagsmenn og verður könnunin send félagsmönnum nú í febrúar. Einnig verður lögð fyrir félagsmenn könnunin „Stofnun ársins“ og verður valin fyrirmyndarstofnun úr fyrirtækjum og stofnunum borgarinnar og Akranesskaupstaðar.
Öflug tæki – hvert svar skiptir máli!
Launakönnunin er öflugt tæki fyrir félagsmenn sem nýtist í baráttu fyrir bættum starfskjörum. Launakönnunin veitir skýra mynd af kjörum félagsmanna, þannig að félagsmenn geti borið saman kjör sín og annarra. Þátttaka í Stofnun ársins er hluti af baráttu St.Rv. fyrir bættu starfsumhverfi. Könnunin veitir stjórnendum aðhald, segir þeim hvað vel er gert og hvað má betur fara á vinnustaðnum.
Stærsta vinnumarkaðskönnunin
Könnunin er stærsta vinnumarkaðskönnun hér á landi og er unnin er í samstarfi við VR, VSSÍ, SFR og fjármálaráðuneytið. Niðurstöður launakönnunarinnar verða birtar í haust, en niðurstöður úr vali á fyrirtæki og stofnunum innan borgarinnar og Akranesskaupstaðar verða birtar í vor.
Niðurstöður úr launakönnun 2011 má sjá hér http://www.strv.is/kjaramal/launakonnun-2011/
Könnunin er send félagsmönnum í netpósti, en ef viðkomandi hefur ekki netfang, er hægt að fá könnunina senda í venjulegum pósti. Hringt verður í félagsmenn nú í lok janúar til að afla netfanga félagsmanna.
Svör eru trúnaðarmál
Farið verður með öll svör sem fullkomið trúnaðarmál og mun Capacent Gallup annast alla gagnavinnslu og framkvæmd könnunarinnar. Í launatöflum eru meðallaun ekki birt nema sex eða fleiri svarendur séu á bakvið hvern flokk. Að lágmarki þurfa fjórir að svara fyrir fyrirtæki eða stofnun svo að niðurstaða sé birt, auk þess sem krafa er gerð um a.m.k. 35% svarhlufall. Ef færri en fjórir svara eða ef þátttaka er minni er 35% er niðurstaðan ekki birt.
Ef þið hafið spurningar varðandi framkvæmd könnunarinnar er hægt að hafa samband beint við Tómas Bjarnason, Elínu Valgerði Margrétardóttur eða Þórhall Ólafsson hjá Capacent Gallup í síma 540 1000.