Beint á leiðarkerfi vefsins

Matreiðslumenn í grunnskólum Reykjavíkurborgar

Matreiðslumenn sem starfa í mötuneytum grunnskóla Reykjavíkur hafa verið að hittast óformlega einu sinni í mánuði og borið saman bækur sínar. Þetta varð til þess að nokkrir þeirra tóku sig saman og ákváðu að stofna formlega hagsmunasamtök sem ynnu að því á faglegan hátt að efla samheldni og fagleg vinnubrögð. Einnig að leggja ríka áherslu á að bæta hag þeirra.

Þann 20. október 2009 var boðað ti stofnfundar og mættu 25 kokkar víðsvegar úr borginni á fundinn. Á fundinum var lögð fram lög félagsins og þau samþykkt af öllum viðstöddum. Einnig var kosið í stjórn félagsins.

Stjórnina skipa,

formaður:

undefined

 

 

 

Unnsteinn Hörleifsson, unnsteinn.o.hjorleifsson@reykjavik.is

 

varaformaður:

undefinedGunnar Bollason, gunnar.bollason@reykjavik.is

ritari: Þorbjörg Jóhannesdóttir, Vesturbæjarskóla. Varamenn Sigrún Sigurjónsdóttir og Hallgrímur Georgsson.

Helsti tilgangur félagsins er að huga að hagsmunum félagsmanna og góðum og eðlilegum samskiptum milli þeirra og annara deilda innan Reykjavíkurborgar.

Félagsmenn hittast fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði skólaársins, en þar fyrir utan hafa verið haldnir ýmsir aðrir fundir þar sem reynt hefur verið að fá aðila til fræðslu og kynninga.

Félagið hefur sett upp bloggsíðu svo menn geti skipst á skoðunum og hana má komast hér:

http://hagsmunafelag.blogg.is

 

undefined

Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English