Félagsmenn í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar geta sótt um styrki;
Sex sjóðir eru á vegum félagsins, þ.e. félagssjóður, vinnudeilusjóður, orlofssjóður, starfsmenntunar- og starfsþróunarsjóður, vísindasjóður og styrktarsjóður BSRB. Um orlofssjóð, starfsmenntunarsjóð, vísindasjóð og styrktarsjóð hefur verið samið í kjarasamningum og eru iðgjaldagreiðslur til þeirra samningsatriði á hverjum tíma.
Iðgjald til félagssjóðs er ákveðið á aðalfundi félagsins ár hvert. Félagssjóður stendur undir öllum rekstri félagsins, hluti sjóðsins fer í rekstur BSRB og ákveðið er á aðalfundi hlutfall sem fer í vinnudeilusjóð, en úr vinnudeilusjóði, er m.a. úthlutað til félagsmanna í kjaradeilum.