Félagið hefur tekið á leigu íbúð, 180 m2 að Norðurvegi 7-11 í Hrísey.
Á annari hæð ofan við verslun, íbúð er með stofu og borðstofu, fjórum svefnherbergjum, eldhúsi, baðherbergi og lítilli snyrtingu. Í Hrísey er nýtt íþróttahús þar er glæsileg sundlaug ásamt heitum potti, í eynni eru góðar gönguleiðir og gott berjaland, einnig er gaman að skoða náttúruna ásamt fjölbreyttu fuglalífi.
Íbúðirnar eru miðsvæðis við flest í eyjunni, veitingahús í næsta húsi, fjarlægð í pósthús og banka er um 100 metrar í sundlaug um 200 metrar og svipuð vegalengd að ferju, ágætis fótbolta og flugvöllur er í Hrísey.
Hríseyjarferjan fer að jafnaði um 9 ferðir á dag milli Hríseyjar og Árskógsstrandar, siglingin tekur um 15 mín. frekari uppl. á netinu undir hrisey.net eða eyfar.is
![]() ![]() |
|
![]() ![]() |
|
![]() ![]() |
|