VEIÐIKORT
|
St.Rv. býður félagsmönnum sínum að kaupa Veiðikortið á skrifstofu félagsins og á orlofsvef félagsins. Kortið kostar 4.000 fyrir félagsmenn. Veiðikortið er nýlunda hjá félaginu en hefur verið afar vinsælt hjá áhugafólki um veiði undanfarin ár. Nánari upplýsingar um veiðistaði og fleira má finna á www.veidikortid.is bæði á íslensku og ensku. |
![]() |
ÚTILEGUKORT
|
St.Rv. býður félagsmönnum sínum að kaupa Útilegukortið á skrifstofu félagsins. Kortið kostar 8.800 kr. fyrir félagsmenn. Útilegukortið gildir á yfir 39 tjaldstæðum á landinu og veitir tveimur fullorðnum og fjórum börnum undir 16 ára aldri, fría gistingu á tjaldsvæðum samstarfsaðila Útilegukortsins. Þetta gildir eins lengi og tjaldsvæðin eru opin og engin takmörk eru fyrir því hve oft má koma á hvert tjaldsvæði, en einungis má gista í fjórar nætur samfellt í hvert skipti. Allar nánari upplýsingar um kortið og tjaldsvæðin má finna á vef Útilegukorsins. http://www.utilegukortid.is Nú er búið að ganga frá samningum við þau 39 tjaldsvæði sem taka munu þátt í kortinu í ár. Kortið í ár verður jafnframt það stærsta í sögu Útilegukortsins þar sem aldrei hafa jafn mörg tjaldsvæði staðið korthöfum til boða |
|
VEIÐI OG TJALDSTÆÐI AÐ ÞÓRISSTÖÐUM
Öllum félagsmönnum í St.Rv. mökum þeirra og börnum upp að 16 ára aldri, er heimill aðgangur, án endurgjalds, að tjaldstæðum í landi Þórisstaða í Svínadal, auk veiði í eftirtöldum vötnum: Geitabergsvatni, Þórisstaðavatni og Eyrarvatni þó er undanskilið svæði K.F.U.M -manna sunnanvert við Eyrarvatn auk ár-stubbana milli vatnanna.
Veiðitímabil er: 1. apríl til 25. sept. 2010
Veiðitími er frá kl. 7:00 til 22:00 til og með 20. ágúst. Frá 21. ágúst er veiðitíminn frá kl. 7:00 til 21:00. Þeir sem nota þessa aðstöðu þurfa að geta staðfest að þér séu félagsmenn í St.Rv. með vinnutímabókinni eða félagsskírteini.