Beint á leiðarkerfi vefsins

Fræðslumál í kjarasamningi

Úr kjarasamningi St.Rv. og Reykjavíkurborgar 

9 FRÆÐSLUMÁL
9.1 Starfs- og endurmenntun á vegum Reykjavíkurborgar

9.1.1 Starfsmenn skulu eiga kost á fræðslu og símenntun til að auka við þekkingu sína og faglega hæfni.

9.1.2 Þeir starfsmenn, sem sækja fræðslu- eða þjálfunarnámskeið samkvæmt beiðni stofnunar sinnar, skulu halda reglubundnum launum á meðan og fá greiddan kostnað samkvæmt 5. kafla.

9.1.3 Starfsmenntunarnefnd fylgist með og hefur eftirlit með fræðslu og símenntun hjá borgarstofnunum með það í huga að allir starfsmenn eigi kost á henni. Hún gerir tillögur til kjaraþróunardeildar eða borgarstofnana eftir atvikum um úrbætur þegar við á. Starfsmenntunarnefnd er skipuð tveimur fulltrúum frá hvorum aðila. 9.2 Launalaust leyfi

9.2.1 Starfsmaður skal eiga rétt á launalausu leyfi, ef honum býðst tækifæri og/eða styrkur til að vinna að tilteknu verkefni, m.a. tengdu starfi hans. Slíkt frí skal tekið í samráði við yfirmann stofnunar.

9.2.2 Um launalaus leyfi gilda reglur um launalaus leyfi starfsmanna Reykjavíkurborgar, samþykktar í borgarráði.

Sjá nánar reglur Reykjavíkurborgar um launalaus leyfi aftast í viðauka. 9.3 Launuð námsleyfi

9.3.1 Starfsmenn sem starfað hafa hjá Reykjavíkurborg samfellt í 2 ár skulu eiga kost á launuðu námsleyfi til að sækja skipulagt starfsnám, framhalds- eða endurmenntunarnám, sbr. 9.3.2. Leyfi skv. framanskráðu er einungis veitt til náms sem nýtist í starfi hjá Reykjavíkurborg.

9.3.2 Umsókn um námsleyfi berist yfirmanni viðkomandi stofnunar, sem tekur ákvörðun um veitingu leyfis. Til hliðsjónar ákvörðun skal hafa eftirfarandi viðmið:

Eftir 2ja ára starf er heimilt að veita leyfi í allt að 1 mánuð.
Eftir 3ja ára starf er heimilt að veita leyfi í allt að 2 mánuði.
Eftir 5 ára starf er heimilt að veita leyfi í allt að 3 mánuði.
Eftir 7 ára starf er heimilt að veita leyfi í allt að 6 mánuði.
Eftir 10 ára starf er heimilt að veita leyfi í allt að 9 mánuði.

Dreifa má leyfi á lengri tíma, eða allt að þrjú ár, t.d. ef lagt er stund á fjarnám eða nám með vinnu.

Líða þurfa a.m.k. 18 mánuðir milli námsleyfa. Eftir 6 mánaða eða lengra leyfi þurfa að líða a.m.k. 36 mánuðir.

9.3.3 Starfsmaður haldi föstum launum í námsleyfi. Miðað skal við meðaltalsstarfshlutfall hafi starfsmaður ekki verið í fullu starfi þann tíma er hann ávinnur sér réttindi. Laun starfsmanns greiðast af viðkomandi borgarstofnun.

9.3.4 Heimilt er að binda námsstyrki og greiddan kostnað stofnunar vegna starfsmanna, svo sem vegna viðamikillar endurmenntunar þeirra, skilyrði um áframhaldandi starf hjá Reykjavíkurborg í allt að 12 mánuði að námi loknu.

9.3.5 Verði ágreiningur um framkvæmd ákvæða 9.3.1-9.3.4 skal leggja hann undir starfskjaranefnd. 9.4 Starfsmenntunarsjóður

9.4.1 Reykjavíkurborg greiðir sérstakt gjald í starfsmenntunarsjóð félagsmanna St.Rv. Gjald þetta skal nema 0,3% af heildarlaunum félagsmanna. Ráðstöfun skal miðast við að gefa starfsmönnum kost á námi til að efla þá í starfi sínu hjá Reykjavíkurborg eða eftir atvikum að gefa þeim tækifæri til að mennta sig á nýju sviði vegna samnings við vinnuveitanda um starfsþróun eða vegna væntanlegs stöðumissis. 9.5 Vísindasjóður

Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English