Beint á leiðarkerfi vefsins

Hvernig fer starfsmat fram

 

Þeir starfsmenn sem veljast í úrtak koma til með að fá sérstakt kynningarefni til undirbúnings.

 

Áður en starfsmatið hefst eru eftirfarandi grunnupplýsingar skráðar:  Starfsheiti, nafn starfsmanns, nafn yfirmanns, nafn starfsmatsaðila, stofnun/sveitarfélag, kyn, aldur og dagsetning.

 

Að því loknu er ýtt á „Next″ og þá birtist eftirfarandi gluggi.  Í þessu gluggaumhverfi fer allt starfsmatið fram.  Hver og ein spurning birtist á gulum grunni og mögulegir svarmöguleikar hverju sinni birtast þar fyrir neðan. 

 

Sumum spurningum fylgja viðbótarupplýsingar / skýringar.  Þá birtist sjálfkrafa svokallaður hjálpargluggi.  Í honum er t.d. skilgreint nánar hvað er átt við með tilteknum spurningum og/eða svarmöguleikum.

 

 

Eftir að starfsmaður hefur valið þann svarmöguleika sem er mest viðeigandi fyrir starf hans þá velur hann „Next″ og þá birtist næsta spurning.  Sá svarmöguleiki sem er valinn hverju sinni ákvarðar hvaða spurning birtist næst og hvaða spurningum er sleppt. 

 

Sé þess óskað er alltaf hægt að bakka til baka og skoða aftur síðustu spurningu eða fara áfram og skoða þar næstu spurningu.  Hvert starfsmat tekur á bilinu 45 mínútur til 3 klukkustundir.

 

Ef starfsmaður er af einhverjum ástæðum ósáttur við þá svarmöguleika sem í boði eru þá er hægt að koma á framfæri athugasemdum með því að velja „Comments″ takkann.  Þá birtist eftirfarandi gluggi þar sem hægt er að skrá inn athugasemdir sem síðan koma fram á starfsyfirliti (sjá síðar).

 

 

 

Alls eru þrettán þættir í starfmatinu.  Í hvert skipti sem starfmaður hefur lokið við að svara öllum spurningum er tilheyra tilteknum þætti þá birtist kynningargluggi.  Þar kemur fram hvað næsta þætti er ætlað að meta og hvers sé að vænta í næstu spurningum á eftir.

 

 

 

Eftir að starfsmaður hefur svarað spurningum úr öllum þáttum þá er prentað út svokallað starfsyfirlit, sem er á tveimur til þremur blaðsíðum. 

 

Á starfsyfirlitinu kemur fram lýsing á innihaldi starfsins, sundurliðað eftir þáttum.  Þau svör sem að starfsmaður velur í starfsmatinu endurspeglast í þessu starfsyfirliti.

 

Bæði starfsmanni og yfirmanni ber síðan að staðfesta þetta starfsyfirlit sem réttmæta lýsingu á viðkomandi starfi.

 

 

 

Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English