Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir af starfsmati

Samkomulag um starfsmatið 15. ágúst 2003

Föstudaginn 15. ágúst 2003 undirrituðu fulltrúar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, Eflingar - stéttarfélags, Kjarafélags Tæknifræðingafélags Íslands og Reykjavíkurborgar samkomulag um þýtt og staðfært starfsmatskerfi. Um leið var staðfest hvernig allri framkvæmd verður háttað á starfsmati á öllum störfum og hvernig niðurstöður matsins verða birtar á aðgengilegan hátt fyrir alla starfsmenn þegar matið liggur fyrir. 
Stefnt er því að hraða sem mest mati á störfum og innleiðingu kerfisins.

 

Samkomulag 26. janúar 2003

Sameiginleg tilkynning frá Reykjavíkurborg, Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar, Eflingu – stéttarfélagi og KjarafélagiTæknifræðingafélags Íslands.

Í kjarasamningum ofangreindra aðila var samið um að taka upp nýtt starfsmatskerfi og leiðrétta starfslaun í áföngum á samningstímabilinu. Samhliða þessari launakerfisbreytingu var ákveðið að taka upp nýtt hæfnislaunakerfi í stað eldra kerfis. Langtímamarkmið með breytingu á launakerfinu er m.a. að greiða sömu laun fyrir sambærileg og jafnverðmæt störf hjá stofnunum og fyrirtækjum Reykjavíkurborgar.

 Starfsmatsnefnd, sem skipuð er fulltrúum Reykjavíkurborgar og stéttarfélaganna þriggja, hefur frá upphafi lagt mikla vinnu við starfsmatskerfið SAMSTARF. Starf nefndarinnar felst m.a. í mati á einstökum þáttum hvers starfs og að tryggja að öll störf séu metin með sömu aðferð. Þetta hefur verið afar tímafrek vinna sem ekki er lokið en hefur reynst nauðsynleg til að tryggja áreiðanleika starfsmatsins. Þá er að störfum sérstök hæfnismatsnefnd aðila sem af sömu ástæðum hefur ekki náð að ljúka störfum.

Samningsaðilar eru sammála um að hrinda nú í framkvæmd þeim þætti nýs launakerfis
sem lýtur að hæfnislaunum vegna virkrar þátttöku í símenntunaráætlun stofnunar.
Sömuleiðis að knýja á um, að þær stofnanir sem enn hafa ekki gert símenntunaráætlanir, ljúki þeirri vinnu. Þá eru samningsaðilar sammála um að birta starfsheiti á launaseðlum í samræmi við ÍSTARF staðla við launagreiðslu þann 1. mars nk. Ásetningur samningsaðila er að ljúka innleiðingu starfslauna á grundvelli starfsmats 1. nóvember 2004.
Með meðfylgjandi samkomulagi, dags. 26. janúar 2004, vilja samningsaðilar tryggja framgang kjarasamninga aðila og nýs launakerfis hjá Reykjavíkurborg.

SAMKOMULAG
samningsaðila vegna seinkunar á innleiðingu á nýju starfs- og hæfnislaunakerfi, starfsmanna Reykjavíkurborgar í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar, Eflingu – stéttarfélagi og Kjarafélagi Tæknifræðingafélags Íslands.

Samningsaðilar eru sammála um eftirfarandi varðandi framkvæmd kjarasamninga aðila:

1. Að fela starfsmatsnefnd að ljúka starfsmatsviðtölum og launa-tengingu starfsmats eigi síðar en 15. október 2004 og greiða laun samkvæmt því hinn 1. nóvember 2004.

2. Að starfsheiti (í samræmi við ístarf-staðla) verði birt á launaseðlum 1. mars 2004.

3. Að Reykjavíkurborg kynni samningsaðilum 15. febrúar 2004 hvaða stofnanir hafa enn ekki gert símenntunaráætlanir fyrir starfsmenn. Reykjavíkurborg tryggi að símenntunaráætlanir verði gerðar þar sem vanhöld eru á í samræmi við ákvæði kjarasamninga.

4. Að hæfnislaun vegna símenntunar komi til framkvæmda hinn 1. mars 2004 og taki gildi afturvirkt miðað við 1. desember 2002, sbr. ákvæði kjarasamninga um gildistöku hæfnislauna. Stofnanir og fyrirtæki annist framkvæmdina í samráði við samningsaðila. Hæfnislaun samkvæmt eldra fyrirkomulagi falli niður frá gildistöku nýrra hæfnislauna.

5. Að störfum tæknifræðinga verði grunnraðað í nýja launatöflu til starfslauna til bráðabirgða af samstarfsnefnd samningsaðila og starfs-mönnum raðað til hæfnislauna vegna símenntunar í samræmi við ákvæði 16.3.2 í kjarasamningi aðila, sbr. 4. tl. að ofan.

6. Að launapottar skv. yfirlýsingum með kjarasamningum dags. 2. mars 2001 og 22. mars 2001 1.12.2002 vegna launaleiðréttinga hækki um 3% miðað við 1.1.2003 og 1.1.2004 en launapottar 1.12.2003 hækki um 3% m.v. 1.1.2004.*

7. Að 3% áfangahækkun, sem tók gildi hinn 1. janúar 2004, færist fram til 1. september 2003 vegna þeirrar seinkunar sem orðin er á innleiðingu nýs launakerfis og komi mismunurinn til greiðslu hinn 1. mars 2004.

Reykjavík, 26. janúar 2004

F.h. Reykjavíkurborgar

F.h. Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar -

F.h. Eflingar stéttarfélags

F.h. Kjarafélags Tæknifræðingafélags Íslands * 6.tl. á ekki við

 

-Samkomulag nóv. 2002

Seinkun á framkvæmd kjarasamnings
Viðræður hafa verið í gang i síðustu vikurnar milli samninganefndar borgarinnar og þeirra stéttarfélaga sem sömdu um að taka upp starfsmat til ákvörðunar á starfslaunum. Þetta eru auk Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, Efling stéttarfélag og Kjarafélag tæknifræðinga. Ljóst hefur verið um nokkurt skeið að starfsmatið yrði ekki tilbúið á tilsettu tíma þ.e. 1. desember næstkomandi. En félagið hafði reiknað með því að nýtt hænislaunakerfi kæmi til framkvæmda þrátt fyrir seinkun starfsmats. Reykjavíkurborg var hins vegar ekki tilbúin að framkvæma þessa tvo hluta launasetningar í tvennu lagi. Eftir nokkra  viðræðufundi  náðist samkomulag milli aðila og fylgir hér með sameiginleg tilkynning aðila og bókun um þá niðurstöðu. Við hvetjum félagsmenn til þess að kynna sér þetta vel. Eins og fram kemur í bókuninni munu samningsaðilar  hafa sameiginlega fréttamiðlun af gangi mála á vefsíðurm sínum. 

Sameiginleg tilkynning frá Reykjavíkurborg,
Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar og Eflingu- stéttarfélagi

 

Efni: Frestun á innleiðingu á nýju launakerfi starfs- og hæfnislauna

Í kjarasamningum milli Eflingar - stéttarfélags, Kjarafélags Tæknifræðingafélags Íslands og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar annars vegar og Reykjavíkurborgar hins vegar var samið um að taka upp nýtt starfsmatskerfi og leiðrétta starfslaun í áföngum á samningstímabilinu út frá vissum fjárhagsramma. Samhliða þessari launakerfisbreytingu var ákveðið að taka upp eitt samræmt hæfnismat og nýtt hæfnislaunakerfi. Tilgangurinn var að hrinda í framkvæmd á samningstímabilinu breytingum á launakerfinu til að ná árangri varðandi það langtímamarkmið að greiða sömu laun fyrir sambærileg og jafnverðmæt störf hjá öllum stofnunum og fyrirtækjum Reykjavíkurborgar.

Nú liggur fyrir að nýtt starfs- og hæfnismatskerfi reynast ekki tilbúin til notkunar og þar með ekki launaákvarðanir á grundvelli þeirra hinn 1. desember 2002.  Þess vegna verður nýtt launakerfi ekki tekið upp á þeim tíma og því kemur umsamin launabreyting ekki til framkvæmda 1. desember nk. Þetta felur í sér að núverandi ákvæði kjarasamninga um röðun í launaflokka til starfs- og hæfnislauna verður áfram í gildi uns nýtt launakerfi um starfs- og hæfnislaun verður tilbúið sem  þá verður innleitt með afturvirkum hætti frá 1. desember 2002.

Ástæður frestunar eru í aðalatriðum þessar: Þýðing og staðfæring á starfsmatskerfinu hefur reynst tímafrekari og flóknari en fyrir varð séð. En því verki er að ljúka um þessar mundir. Þá á eftir að prófa kerfið og ganga úr skugga um áreiðanleika þess. og hefst sú vinna eftir áramót. Samningsaðilar taka þá við niðurstöðum prófana á starfsmatskerfinu og staðfesta hvort það sé tilbúið til notkunar og að því loknu hefst vinna starfsmatssérfræðinganna við  að framkvæma mat á hverju starfi. Að afloknu starfsmati munu samningsaðilar ákvarða hvernig launaleiðréttingum skuli hagað í samræmi við niðurstöður nýs starfsmats. Þá á eiga samningsaðilar eftir að leiða til lykta samninga um hæfnismatskerfið og launatengingu þess.Samningsaðilar harma þessa töf en hún stafar af því að verkið hefur reynst umfangsmeira en við var búist í upphafi.

Samningsaðilar leggja áherslu á að– þrátt fyrir þessa töf – er það staðfastur ásetningur þeirra að hrinda í framkvæmd kjarasamningsákvæðunum um nýtt launakerfi svo fljótt sem mögulegt er.  Hinn 26. nóvember sl. undirrituðu samningsaðilar eftirfarandi bókun sín á milli varðandi framkvæmd kjarasamninganna:

 

“Bókun Efni: Frestun á innleiðingu á nýju starfs- og hæfnislaunakerfi

Efling – stéttarfélag, Kjarafélag Tæknifræðingafélags Íslands og Starfsmanna­félag Reykjavíkurborgar annars vegar og samninganefnd Reykjavíkurborgar hins vegar hafa komið sér saman um eftirfarandi bókun vegna framkvæmdar á nýju launakerfi skv. kjarasamningum:

1.      Gildistaka á nýju starfs- og hæfnislaunakerfi verður óbreytt miðað við 1. desember 2002.

2.      Aðilar munu á vettvangi verkefnisstjórnar um starfsmat knýja á um verklok á forprófunum á nýju starfsmatskerfi fyrrihluta mars 2003 og ákveða þá hvenær starfsmati á öllum störfum félagsmanna verði lokið.

3.      Reykjavíkurborg mun leggja starfsmatsverkefninu til viðbótarstarfsmenn að afloknum forprófunum til að hraða starfsmati á öllum störfum.

4.      Aðilar munu strax hefja störf í starfsmatsnefnd en þar bíða mörg mikilvæg verkefni úrlausnar.

5.      Vegna frestunar á innleiðingu nýs launakerfis hafa samningsaðilar komið sér saman um að flýta til 1. desember 2002 gildistöku á 3% áfangahækkun samkvæmt kjarasamningum sem taka átti gildi 1. janúar 2003.

 

F.h. Reykjavíkurborgar                                         F.h. Eflingar-stéttarfélags, 
                                                            
Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar    
                                                         Kjarafélags Tæknifræðingafélags Íslands
  

Birgir Björn Sigurjónsson (sign)                                         Óli Jón Hertervig (sign)Snorri Jóelsson (sign)                                                          Ragnar Ólason (sign)
Gunnar Eydal (sign)                                             Þórunn Sveinbjarnardóttir (sign)
Ásdís Björnsdóttir (sign)                                                 Sigurður Bessason (sign)
Friðrik Friðriksson (sign)                                             Jakobína Þórðardóttir (sign)
                                                                                   Garðar Hilmarsson (sign)
                                                                                    Sjöfn Ingólfsdóttir (sign)

Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English