Beint á leiðarkerfi vefsins

Orlofsnefnd St.Rv.

Hlutverk nefndarinnar.
Orlofsnefnd St.Rv. skal vera stefnumótandi varðandi orlofsmál á vegum félagsins og hafi heildaryfirsýn yfir málefnið. Orlofsnefnd St.Rv. fjallar um Orlofsheimilasvæði, sumarhús og íbúðir félagsins og gerir tillögur um  viðhald, breytingar og úrbætur á svæðunum sjálfum sem og á húsakynnum og húsbúnaði, leiktækjum og leiksvæðum og fylgist með öllum aðstæðum til hagsbóta fyrir dvalargesti. Nefndin hefur veg og vanda af hinni árlegu gróðursetningarferð á Úlfljótsvatni og tekur jafnframt þátt í hliðstæðum ferðum sem farnar eru Munaðarnes og skipulagðar af stjórn fulltrúaráðs orlofsheimila BSRB. Orlofsnefnd St.Rv. annast árlega úthlutun orlofshúsa til félagsmanna og  vegna sumarúthlutunar og páskaviku, samkvæmt reglum þar um.

Orlofsnefnd St.Rv. hefur ekki fjárhagslegt sjálfstæði, hún starfar í umboði stjórnar félagsins og í nánu samstarfi við stjórn Orlofsheimilasjóðs og starfsmenn félagsins. Nefndin leggur allar tillögur sínar fyrir stjórn félagsins til endanlegar afgreiðslu og/eða staðfestingar.
Einn fulltrúi tilnefndur af stjórn St.Rv sem jafnframt er formaður nefndarinnar og einn fulltrúi tilnefndur af hverri deild. Fjármálastjóri St.Rv. starfar með nefndinni.

Orlofsnefnd St.Rv. skipa:

Deild Aðalmaður Varamaður

Stjórn

Jónas Engilbertsson

Stjórn

Guðrún Árnadóttir

 

1. deild Gerður Magnúsdóttir Jóhanna Elín Guðmundsdóttir
2. deild Hulda Gestsdóttir Margrét Þóra Baldursdóttir
4. deild Valdís Valdimarsdóttir Björn Olsen
6. deild Anna Garðarsdóttir Rósa Björk Sigurðardóttir
7. deild Guðný S Kristjánsdóttir Bryndís Steinsdóttir
8. deild Jóhanna H. Jóhannsdóttir Auður Thorarensen
9. deild Kjartan Kópsson
10. deild Erna Olsen   Kristín Hauksdóttir
11. deild Elsa Eyjólfsdóttir Erla G Sigurðardóttir
12. deild Guðrún Guðmundsdóttir
13. deild Vilborg Matthildur Kjartansdóttir Bergþóra Skarphéðinsdóttir

Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English