|
|
Á orlofshúsasvæði BSRB að Eiðum á Starfsmannafélagið tvö hús. Hvort um sig er með þremur svefnherbergjum (svefnstæðum fyrir 6-7), stofu og eldhúsi. Húsin eru vel búin með sjónvarpi, útvarpi, kolagrilli og öllum venjulegum eldhúsbúnaði. |
|
|
Náttúrufegurð Fljótsdalshéraðs hefur lengi verið rómuð, Hallormsstaðaskógur, Skriðuklaustur, Lagarfljótið sem liðast eftir miðju Héraðinu og Snæfell í vestri og Dyrfjöll í austri eru útverðir byggðar á svæðinu. Frá Eiðum, sem eru 10 km frá Egilsstöðum, er skammt niður á firði, sem hver um sig býr yfir sérstaklega fagurri fjallasýn.
|
![]() |
|
|
|