Beint á leiðarkerfi vefsins

Úlfljótsvatn

ulfljotsvatn_f

ulfljotsvatn_a

Við suðurenda Úlfljótsvatns er orlofshúsasvæði St.Rv.

í aðeins 70 km. fjarlægð frá Reykjavík. Þar á félagið 10 sumarhús, sem af stærðum. Þrjú húsanna einu svefnherbergi svefnlofti sjö tveimur svefnherbergjum svefnlofti. Húsin búin öllum venjulegum eldhús-áhöldum, auk útvarps, sjónvarps kola-grills. Sængur og koddar eru í húsunum en allt lín, rúmfatnað, handklæði o.fl. verða gestir að taka með sér.
Heitur pottur er við hvert hús.

ulfljotsvatn_b

Gestir hafa aðgang að bátum og veiði í vatninu. Glæsileg þjónustumiðstöð er í Úlfljótsskála með aðstöðu fyrir gesti. Gufubað, spil o.fl. Þar fá gestir afhenta lykla að húsunum.

 

ulfljotsvatn_d


 

ulfljotsvatn_e

Í húsunum eru öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður, sjónvarp, útvarp, ísskápur og kolagrill.

Í stærri húsunum eru tvö svefnherbergi og svefnloft. Þar eru átta sængur og átta koddar, eldavél m/bakaraofni og örbylgjuofn .

Í minni húsunum er eitt svefnherbergi og svefnloft. Þar eru sex sængur og sex koddar, eldavél m/bakaraofni og örbylgjuofn.

Leigjendur þurfa að hafa með sér: Sængurfatnað (sængurver, lök, koddaver) handklæði, eldhúsrúllu, viskustykki, plastpoka, filtpoka í kaffivél og álpappír undir kol.

Í Úlfljótsskála er setustofa með sjónvarpi. Þar er gufubað, bækur og ýmis spil, sem gestir hafa aðgang að. Upplýsingar um skálann eru í hverju húsi ásamt leiðbeiningum fyrir dvalargesti.

Leigjandi er ábyrgur fyrir góðri umgengni. Við brottför skal skila húsinu hreinu og aðlaðandi fyrir næstu gesti. Eftir að ísskápur hefur verið þrifinn á að stilla hann á 1°.                     Kolagrill þarf að tæma og hreinsa vel grindina, hafi það verið notað. 

Heitu pottana þarf að tæma og þrífa vel fyrir brottför.

Skiptidagar á sumrin eru föstudagar, leigjendur skili húsunum í síðasta lagi kl. 15:00

Starfsfólk Úlfljótsskála lítur eftir frágangi, og nýjir leigutakar geta komið í húsin kl. 17:00

Lyklar að húsunum eru afhentir í Úlfljótsskála. (sími 482-2696)

Ekki er heimilt að hafa með sér heimilisdýr á orlofssvæðinu.

Leigjandi ber ábyrgð á öllum húsbúnaði meðan á leigutíma stendur og skuldbindur sig til að bæta tjón, sem kann að verða af hans völdum, eða þeirra, sem dvelja á hans vegum.

 

Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English