Eiðar eru fornt höfðingjasetur allt frá söguöld. Bændaskóli var þar stofnaður 1883 en síðan starfaði þar Alþýðuskólinn á Eiðum í tæp 80 ár en nú hefur skólastarf þar lagst af. Grunnskóli er rekinn á Eiðum, þar er einnig prestsetur og kirkja. Íþróttavöllur Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands er á Eiðum. Austan Eiðavatns eru einnig Kirkjumiðstöð Austurlands. Hallormsstaðaskógur austan Lagarfljóts er ein helsta náttúruperla landsins en hann er stærsti skógur landsins og einnig má þar finna mörg hæstu tré landsins. Þar er rekin gróðrarstöð Skógræktar ríkisins.
Afgreiðsla
Hótel Edda Eiðum sér um afgreiðslu frá 1. júní til 25. ágúst. Síminn þar er 444 4870. Þangað sækja dvalargestir lykla, sængurfatnað o.fl. Hægt er að fá þar lánuð barnarúm. Utan opnunartíma Edduhótelsins sér Þórunn Oddsteinsdóttir um afgreiðsluna á Eiðum. Sími í afgreiðslu er 471 3803. Einnig er hægt að ná í hana í farsíma 847 1940.
Eiðavatn
Hverju orlofshúsi fylgir bátur til afnota fyrir dvalargesti og er þeim heimil veiði í Eiðavatni. Björgunarvesti eru í húsunum. Í Eiðavatni er allgóð silungsveiði og fjölbreytt fuglalíf er við vatnið. Þar verpa m.a. ýmsar andategundir, himbrimi, grágæs og álft. Auk þess verpir rjúpa mikið á svæðinu. Í skóginum er að finna fjölda fugla og jafnvel má sjá þar uglu og fálka. Útisundlaug er á Egilsstöðum en þar eru heitir pottar. Ýmis þjónusta er á Egilsstöðum s.s. verslanir, veitingahús, bankar, bílaverkstæði, bókasafn, pósthús, heilsugæslustöð, líkamsræktarstöð og tjaldstæði. Á Egilsstöðum er Ferðamiðstöð Austurlands og Minjasafn Austurlands. Einnig má nefna Stríðsminjasafn á Reyðarfirði, Sjóminjasafn á Eskifirði og Álfastein á Borgarfirði eystra sem framleiðir muni úr grjóti.
Gönguleiðir
Við Eiðavatn eru skemmtilegar merktar gönguleiðir. Einnig má benda á gönguleið kringum Húsatjörn vestan Eiða og Selskóg austan Egilsstaða en þar er skemmtilegt útivistarsvæði með góðum göngustígum.
Komið og farið
Skiptidagar eru föstudagar. Seinki leigutaka fram yfir afgreiðslutíma á föstudagskvöldi þ.e. komi menn eftir kl. 22, þá verður að hafa samráð um það við afgreiðslu. Sömuleiðis að leigjendur sem ekki koma í húsin á föstudegi láti vita.Leigjandi ber ábyrgð á öllum búnaði hússins á meðan á leigutíma stendur og skuldbindur sig til þess að bæta tjón sem verða kann af hans völdum, eða þeirra sem dveljast á hans vegum í húsinu á leigutímanum. Lesið vel leiðbeiningar þær sem festar eru upp í húsunum og skylt er að fara eftir þeim.Ekki er heimilt að hafa gæludýr í orlofshverfinu.Húsið á að rýma í síðasta lagi kl. 15 á föstudegi. Eftir þann tíma geta nýir leigjendur gert ráð fyrir að komast í húsin. Við brottför skal ræsta húsið vel, taka lín af rúmum brjóta það saman og skila í afgreiðsluna á Eiðum. Vinsamlega gangið frá húsinu eins og þið viljið koma að því.