Beint á leiðarkerfi vefsins

Almennar upplýsingar um Munaðarnes

Nú eru komnir heitir pottar við öll orlofshúsin í Munaðarnesi. Stutt er í góðar sundlaugar á svæðinu. Sundlaugin á Varmalandi er einungis í nokkurra kílómetra fjarlægð og sundlaugin í Borgarnesi er ein sú besta á landinu.

Golfvöllurinn Glanni við Bifröst opnar í sumar en BSRB-félagar fá afslátt á völlinn. Einnig er golfvöllur að Hamri, rétt utan við Borgarnes og hestaleigur eru nokkrar í næsta nágrenni Munaðarness. Þá er víða hægt að kaupa ódýr veiðileyfi í vötn í nágrenninu, t.d. Hreðavatn og Langavatn. Ferðir á Langjökul njóta vinsælda og þannig mætti lengi telja. Frá Munaðarnesi er stutt að fara til þess að skoða ýmsa fagra og markverða staði, bæði út frá náttúrufræðilegu og sögulegu samhengi. Borg á Mýrum og Reykholt eru meðal þekktustu staða Íslandssögunnar og Grábrókarhraun, Hreðavatn, Baula, Hraunfossar, Surtshellir, Glanni og Paradísarlaut eru meðal helstu náttúruperla landsins.

Þjónustumiðstöðin

Opnunartími Þjónustumiðstöðvar er:sem hér segir: mánudaga til fimmtudagakl. 9-16 og föstudaga frá kl. 10-22.

Hægt er að fá þar lánuð barnarúm. Þvottaaðstaða er fyrir gesti í norðurenda hússins. Leiktækjasalur er í húsinu. Hægt er að nálgast gönguleiðakort í afgreiðslu þjónustumiðstöðvar.

Aðalsalur er búinn hljóðkerfi, sjónvarpi, myndbandstæki, myndvarpa, flettitöflu o.fl. Minni salur er í húsinu þar sem bornar eru fram veitingar auk bars og tveggja herbergja sem nota má fyrir hópvinnu. Í þjónustumiðstöðinni er ljósritunarvél og tölva. Þjónustumiðstöðin er öll miðuð við aðgengi fyrir fatlaða. Að hausti og vori er aðstaðan mikið notuð til ráðstefnuhalds fyrir allt að 80 - 120 manns.

 


 

 

Netfang: munadarnes@bsrb.is

Komið og farið

Skiptidagar eru föstudagar. Seinki leigutaka fram yfir afgreiðslutíma á föstudagskvöldi þ.e. komi menn eftir kl. 22, þá verður að hafa samráð um það við staðarhaldara. Sömuleiðis að leigjendur sem ekki koma í húsin á föstudegi láti vita.Leigjandi ber ábyrgð á öllum búnaði hússins á meðan á leigutíma stendur og skuldbindur sig til þess að bæta tjón sem verða kann af hans völdum, eða þeirra sem dveljast á hans vegum í húsinu á leigutímanum. Lesið vel leiðbeiningar þær sem festar eru upp í húsunum og skylt er að fara eftir þeim.Ekki er heimilt að hafa gæludýr í orlofshverfinu.Húsið á að rýma í síðasta lagi kl. 15 á föstudegi. Eftir þann tíma geta nýir leigjendur gert ráð fyrir að komast í húsin. Við brottför skal ræsta húsið vel, taka lín af rúmum brjóta það saman og skila í þjónustumiðstöð. Vinsamlega gangið frá húsinu eins og þið viljið koma að því.

Námskeið

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English