|
Illugastaðir í Fnjóskadal | ||||||
|
Orlofshúsabyggðin á Illugastöðum í Fnjóskadal er fyrir löngu vel kunn flestum landsmönnum, svo margir hafa dvalið þar eða litið við hjá vinum og kunningjum sem þar hafa dvalið. Illugastaðir eru sívinsæll sumardvalarstaður.
Eining-Iðja á samtals fjórtán orlofshús að Illugastöðum en nokkur þeirra eru leigð til annarra stéttarfélaga í skiptum fyrir orlofshús annars staðar á landinu. Húsin á Illugastöðum hafa öll verið endurnýjuð og lagfærð á undanförnum árum og eru nú hin glæsilegustu að innan sem utan.
Búið er að setja upp rafmagnspotta við öll hús félagsins og nú er unnið við að koma hitaveitu á svæðið frá Reykjum. Hitaveitan verður komin í hvert hús fyrir sumarið. Illugastaðir eru ákaflega vinsæll orlofsdvalarstaður ekki síst meðal félagsmanna Einingar-Iðju, enda er ekki löng ferð úr Eyjafirðinum yfir í Fnjóskadal (50 km frá Akureyri). Fnjóskadalur státar af náttúrufegurð og er dalurinn sannkölluð perla fyrir náttúruunnendur, sérstaklega þá sem áhuga hafa á gönguferðum, jafnt að sumri sem vetri.
Í orlofshúsunum á Illugastöðum eru svefnpláss fyrir átta manns í hverju húsi ásamt sængum fyrir jafnmarga. Húsin eru 45 fermetrar að stærð og eru vel búin, meðal annars er í húsunum sturta, ísskápur, eldavél, örbylgjuofn, borðbúnaður, grill, útvarp og sjónvarp. Á Illugastöðum er meðal annars sundlaug, heitur pottur, gufubað og lítil verslun í þjónustumiðstöðinni. Leikvöllur er á svæðinu með skemmtilegum leiktækjum fyrir börnin. Stutt er yfir í Vaglaskóg þar sem miklir möguleikar eru til gönguferða. Lyklar að orlofshúsunum á Illugastöðum eru afhentir í þjónustumiðstöðinni á staðnum.
|