|
|
|
Félagið var stofnað 17. janúar 1926 og voru stofnfélagar 68, þar af einungis þrjár konur. Þessir starfsmenn Reykjavíkurbæjar gengdu margvíslegum störfum, voru lögregluþjónar, hreinsunar- og gasmenn, gjaldkerar og skrifarar svo eitthvað sé nefnt.
Tímarnir hafa breyst og margar stéttir sem áður tilheyrðu St.Rv. hafa stofnað eigin fagfélög, s.s. slökkviliðsmenn, sjúkraliðar, þroskaþjálfar og leikskólakennarar. En þjónusta borgarinnar hefur að sama skapi aukist og í dag eru félagsmenn St.Rv. tæplega fjögur þúsund þúsund, en einn sjötti þeirra eru eftirlaunaþegar. Alls starfa u.þ.b. tíu þúsund manns innan rúmlega þrjátíu stéttafélaga hjá Reykjavíkurborg, en stærsti hópur borgarstarfsmanna er innan St.Rv. Ekki þarf að sækja sérstaklega um félagsaðild, ef starfsmenn eru ráðnir á kjarasamning St.Rv.
Viðsemjendur félagsins eru auk Reykjavíkurborgar; Strætó bs. Orkuveitan sf, Faxaflóahafnir sf, Fjármálaráðuneytið f.h. ríkissjóðs, Akraneskaupstaður, Félagsbústaðir, Skýrr hf, Innheimtustofnun Sveitarfélaga, Leikfélag Reykjavíkur auk ýmissa minni vinnustaða.
|
|